Borgarahreyfing og L-listi ná ekki flugi 13. mars 2009 05:30 Gunnar Helgi Kristinsson.
Skoðanakönnun 1,6 prósent segist myndu kjósa L-listann og 2,0 prósent styðja Borgarahreyfinguna, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Báðar fylkingar mælast nánast einungis á höfuðborgarsvæðinu og eru aðeins vinsælli meðal karla en meðal kvenna. Ný framboð hafa nánast alltaf byrjað hærra í skoðanakönnunum en úrslit úr kosningum segja til um. Fyrir síðustu kosningar mældist Íslandshreyfingin til dæmis í fyrstu könnun sinni með fylgi upp á fimm prósent, en fékk 3,3 prósent í kosningunum. „Þetta sýnir örugg tök fjórflokksins," segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við HÍ. „Mótmælabylgjan birtist sem vinstri sveifla, frekar en í nýjum flokkum." Hann segir að þau nýju framboð sem hafa haft nokkuð fylgi í upphafi, líkt og framboð Vilmundar Gylfasonar, Kvennalistinn og Borgaraflokkur Alberts Guðmundssonar, hafi öll átt í erfiðleikum með að halda því fylgi fram að kjördegi. „En hér er ekki einu sinni um slíkt að ræða." Þriðja framboðið sem ekki myndi ná manni inn er Frjálslyndi flokkurinn, en 2,2 prósent segjast styðja þann flokk, sem er sama hlutfall og fyrir hálfum mánuði. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka frá því fyrir hálfum mánuði, og allar innan skekkjumarka. Samfylking bætir við sig 2,3 prósentustigum og segjast nú 33,0 prósent styðja flokkinn. Því fengi Samfylking 22 þingmenn væri kosið nú. Sjálfstæðisflokkurinn dalar örlítið frá síðustu könnun, um 1,3 prósentustig. 26,9 prósent segjast nú myndu kjósa flokkinn sem myndi færa honum 18 þingmenn. Vinstri græn halda áfram að dala, nú um 2,7 prósentustig. 21,7 prósent segjast nú myndu kjósa flokkinn. Ef það væri niðurstaða kosninga væru þingmenn flokksins 15. Framsóknarflokkurinn hins vegar stendur í stað frá síðustu könnun. 12,3 prósent segjast nú myndu kjósa flokkinn og myndi það færa honum átta þingmenn. Hringt var í 800 manns, miðvikudaginn 11. mars og spurt; Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið væri til kosninga nú? Óákveðnir voru spurðir; Hvaða lista er líklegast að þú myndir kjósa? Þeir sem enn voru óákveðnir voru þá spurðir; Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern annan flokk. 69,3 prósent tóku afstöðu til spurningarinnar. Af öðrum sögðust 10,6 prósent ekki myndu kjósa eða skila auðu. 11,0 prósent voru óákveðin og 9,1 prósent vildu ekki svara spurningunni. svanborg@frettabladid.is
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Erlent Fleiri fréttir „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Sjá meira