Flestir vilja Bjarna 13. mars 2009 18:58
Mikill meirihluti vill að Bjarni Benediktsson verði formaður Sjálfstæðisflokksins samkvæmt nýrri könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins. Guðlaugur Þór fengi aftur á móti fæst atkvæði af þeim sem nefndir voru. Nýr formaður Sjálfstæðisflokksins verður kjörinn á landsfundi síðustu helgina í mars. Bjarni Benediktsson er sá eini sem hefur gefið kost á sér og verður að teljast líklegastur sem næsti formaður flokksins ef marka má nýja skoðanakönnun sem fréttastofa stöðvar 2 og Fréttablaðið létu gera. Bjarni fengi rúmlega 44% atkvæða en Þorgerður Katrín, varaformaður, fengi tæp 30%. Aðrir sem fréttastofa nefndi sem mögulega formenn voru Kristján Þór Júlíusson, Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri og Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra sem fengi tæplega 4 prósent atkvæða og var lægstur af þeim sem nefndir voru. Rúm 9% vildu sjá aðra en þessa sem formenn og fékk Illugi Gunnarsson þar flest atkvæði eða 5,5% Þá virðast fleiri karlar vilja Bjarni sem næsta formann, eða rúm 50%. Sé hinsvegar litið á atkvæði kvenna þá fengi Þorgerður Katrín flest, eða rúm 40%. Þegar atkvæðunum er skipt eftir stjórnmálaflokkum eru það aðeins kjósendur Samfylkingarinnar sem vilja heldur sjá Þorgerði Katrínu sem formann en Bjarna. Kjósendur Framsóknar og Vinstri grænna gáfu Guðlaugi Þór ekkert atkvæði og vildu heldur sjá aðra leiða listann. Illugi var þar oftast nefndur. Niðurstaðan byggist á 800 svörum sem skiptist jafn á milli karla og kvenna og hlutfallslega eftir búsetu.
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira