Innlent

Þjónusta við fatlaða færist til sveitarfélaga

Halldór Halldórsson er formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Halldór Halldórsson er formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Ríkisstjórn Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa undirritað viljayfirlýsingu um tilfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga árið 2011. Stefnt er að því að ljúka samkomulagi um framkvæmdina á þessu ári. Heildarkostnaður þjónustu við fatlaða sem ríkið sinnir nú nemur um 10 milljörðum króna á ári.

Í tilkynningu kemur fram að Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, Kristján L. Möller samgönguráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hafi undirritað yfirlýsinguna fyrir hönd ríkisstjórnarinnar en Halldór Halldórsson formaður og Karl Björnsson framkvæmdastjóri fyrir hönd Sambands íslenskra sveitarfélaga. Til að standa undir kostnaði vegna tilfærslunnar verða tekjur sveitarfélaganna auknar með breytingum á lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Sveitarfélögin munu bera faglega og fjárhagslega ábyrgð á þjónustunni.

Þjónustusvæði verða mynduð



Til stendur að mynda þjónustusvæði um rekstur þjónustunnar og er miðað við að hvert þeirra hafi að lágmarki 8.000 íbúa. „Samgönguáðherra getur þó veitt undanþágu frá þessu viðmiði ef sérstakar aðstæður mæla með því og viðkomandi sveitarfélög hafa sýnt fram á getu til að veita alhliða þjónustu. Verkefni sem sveitarfélögin taka að sér Sveitarfélög taka að sér ábyrgð á þjónustu við fatlaða í sambýlum og á áfangastöðum fatlaðra. Þau munu sinna frekari liðveislu í þjónustu og íbúðakjörnum og dagþjónustu við fatlaða sem ekki fellur undir vinnumál. Einnig verða heimili fyrir fötluð börn og skammtímavistun á ábyrgð sveitarfélaganna ásamt ábyrgð á stuðningsfjölskyldum fatlaðra barna."












Fleiri fréttir

Sjá meira


×