Innlent

Sautján innbrot á Suðurlandi í vikunni

Innbrotsþjófar leika lausum hala á Suðurlandi og hefur lögreglunni á Selfossi verið tilkynnt um sautján innbrot í vikunni. Langflest innbrotin, eða tólf, eru í sumarbústaði, einkum í Brekkuskógi, Úthlíðarlandi og Reykjaskógi.

Ýmsu smálegu hefur verið stolið úr þeim, en ekki unnar skemmdir nema á dyraumbúnaði. Þá er verið að rannsaka innbrot í þrjú fyrirtæki á Selfossi og í tvo bíla í Hveragerði. Lögregla telur líklegt að sömu menn hafi verið að verki í mörgum tilvikum, en enginn hefur verið handtekinn og enginn liggur undir grun að svo komnu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×