Ódæðið í Reykjanesbæ: Fjölskylda konunnar í áfalli 29. september 2009 11:28 Selma Guðnadóttir var leidd fyrir dómara í gær. „
Við erum bara í sjokki," segir systir Selmu Guðnadóttur sem situr í gæsluvarðhaldi eftir að hafa stungið fimm ára gamla telpu í bringuna í Reykjanesbæ um helgina. Hinn 22 ára gamla Selma var handtekin á heimili móður sinnar í hádeginu á sunnudaginn eftir að hafa stungið telpuna fyrirvaralaust í bringuna með eldhúshnífi. Af hlutust lífshættulegir áverkar. Áður hafði fjölskyldan kært hana fyrir eignaspjöll á heimili sínu og mótorhjóli. „Hún sefur mikið í gæsluvarðhaldinu, en hún hefur alltaf sofið mikið," segir systir Selmu sem er enn í áfalli eftir að hafa fengið fréttirnar um systur sína á sunnudaginn. „Ég snappaði bara þegar ég heyrði þetta," segir hún um fyrstu viðbrögð sín þegar hún heyrði af ódæðinu. Fjölskyldan er í sárum að hennar sögn. Fimm ára stúlkan var flutt með hraði á Landspítalann í Reykjavík eftir árásina. Í fyrstu var hlynnt að henni á gjörgæslu. Hún var fljótlega útskrifuð þaðan og er nú á barnaspítalanum. Samkvæmt föður stúlkunnar, Óskari Harðarsyni, þá er hún öll að koma til: „Hún er úr stáli," sagði hann í viðtali við Stöð 2 í gær. Selma var úrskurðuð í vikulangt gæsluvarðhald í gær. Að auki er henni gert að sæta geðrannsókn. Selma játaði verknaðinn skýlaust en ekki er ljóst hvað henni gekk til með ódæðinu. „Hún er bara veik," segir systir hennar en fjölskyldan hefur þurft að þola margt í gegnum tíðina að hennar sögn. „Ég trúi ekki enn þá að hún hafi gert þetta," segir systir hennar sem er brugðið. Aðspurð hvort hún viti hversvegna Selma stakk stúlkuna segist hún ekki hafa svör á reiðum höndum. Systirin segir að Selma hafi það ágætt í gæsluvarðhaldinu. Síðast hafi móðir hennar farið með föt og liti í fangelsið til Selmu en hún mun vera mikill listamaður þegar hún tekur sig til að sögn systur hennar. Spurð hvað taki nú við hjá Selmu segist systir hennar ekki vita það. „En það á ekki að hleypa henni út," segir hún og fordæmir ódæði Selmu um leið. Málið er enn í rannsókn lögreglunnar á Suðurnesjum.
Mest lesið Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Innlent Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Erlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Önnur sprunga opnast Innlent Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði Innlent Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Innlent Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Innlent Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Innlent Strandveiðar bannaðar á morgun Innlent Fleiri fréttir Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Sjá meira