Ásta baðst afsökunar 2. mars 2009 20:03 Ásta Möller baðst afsökunar á sínum þætti í efnahagshruninu í dag. „
Þegar litið er um öxl getur engum dulist að Sjálfstæðisflokkurinn og þingmenn hans hefðu getað gert betur á síðustu árum. Ég á minn þátt í því andvaraleysi sem þingmenn þjóðarinnar hafa gert sig seka um á undanförnum mánuðum, misserum og jafnvel árum gagnvart þróun efnahagsmála í landinu og því hruni sem lengi var í uppsiglingu og varð að veruleika í októberbyrjun," sagði Ásta Möller þingkona við opnun kosningaskrifstofu sinnar í dag. Ásta asgði að eftir á að hyggja væri ljóst að þingmenn, embættismenn, fréttamenn, hagfræðingar og aðrir hafi sofið á verðinum. „Mér þykir miður að vera ein þeirra sem hefði átt að vaka betur og biðst afsökunar á mínum þætti málsins," sagði Ásta. „Um leið má ef til vill spyrja um leið og ég viðurkenni mistök hvort ég sé þá ekki vanhæf til áframhaldandi starfa. Svar mitt er hiklaust neitandi. Það að horfast í augu við veruleikann, viðurkenna mistök sín, biðjast afsökunar og reyna að læra af reynslunni gerir fólk ekki vanhæft heldur oft á tíðum þvert á móti að mínu mati," sagði Ásta. Hún sagði að sér finndist samt krafa fólks um endurnýjun vera eðlileg og margir af þeim sem voru í fremstu víglínu hafi nú stigið til hliðar, bæði þingmenn og embættismenn. Það sé samt vafalaust enginn að óska sér þess að til dæmis þingmenn, sem að hennar mati beri allir ákveðna ábyrgð hvar í flokki sem þeir standi, myndu allir sem einn víkja sæti vegna kröfu um endurnýjun. „Það yrði þjóðinni áreiðanlega ekki til góðs," sagði Ásta.
Mest lesið Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Innlent Steinþór sýknaður í Hæstarétti Innlent Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Erlent Einar horfir til hægri Innlent Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Innlent Árásum á Teheran fjölgar og enn einn hershöfðinginn felldur Erlent Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Innlent Íranir hóta „óbætanlegu tjóni“ skerist Bandaríkin í leikinn Erlent Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Innlent Harmar ákvörðun Guðmundar Innlent Fleiri fréttir „Engin virðing borin fyrir því að þarna undir eru verðmæti og störf fólks“ Vesturbæjarlaug lokuð í þrjár vikur til viðbótar Bóndi spurði eftirlitsmann MAST hvort hann ætti að skjóta hann Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hefst í dag Björguðu stjórnvana bát í Faxaflóa Steinþór sýknaður í Hæstarétti Ósk um að heita Óskir hafnað Einar horfir til hægri Harmar ákvörðun Guðmundar Enn þrefað á þingi og árásir ganga á víxl í miðausturlöndum Heyr, heyr-ið í þingsal veldur Snorra hugarangri Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Leituðu Sigríðar í Elliðaárdal Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Segir stefna í menningarslys á Birkimel Kröfur Bandaríkjaforseta, „lágkúruleg“ blokk og hátíðarhöld Skjálfti fannst í Hveragerði Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Einn af hverjum fjórum er erlendur ríkisborgari í atvinnulífinu Hefur leit að nýjum saksóknara Ræða Höllu: Facebookfrí, staða drengja og hatrömm heift Ráðherra um afsögn Helga Magnúsar og hátíðahöld um land allt Katrín Halldóra er fjallkonan í ár Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Flugfélög með áratuga sögu horfin af markaði Ótækt að íþróttafélögin selji áfengi án leyfis Sjá meira