Innlent

Tíu stöðvaðir vegna ölvunaraksturs - fimm vegna fíkniefnaaksturs

Tíu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Einn var stöðvaður á föstudagskvöld, fjórir á laugardag og fimm á sunnudag. Sjö voru teknir í Reykjavík, tveir í Hafnarfirði og einn í Kópavogi. Þetta voru níu karlar á aldrinum 18-38 ára og ein 17 ára gömul kona. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi og þrír höfðu aldrei öðlast ökuréttindi, eftir því sem kemur fram í dagbók lögreglunnar.

Þá stöðvaði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu för fimm ökumanna í umdæminu um helgina en hinir sömu voru allir undir áhrifum fíkniefna. Þetta voru allt karlar en þeir voru teknir víðsvegar í borginni. Mennirnir eru á aldrinum 17-36 ára. Einn þeirra hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×