Íkveikjan á Litla-Hrauni litin alvarlegum augum 11. febrúar 2009 18:52
Fangi á Litla-Hrauni reyndi að slökkva eld sem hann hafði sjálfur kveikt í klefa sínum í gærkvöldi með djús og gítar. Brotið er litið alvarlegum augum og var fanginn settur í einangrun. Agabrot í fangelsinu á Litla-Hrauni voru hátt á annað hundrað á síðasta ári. Fregnir af eldsvoða á Litla-Hrauni í gærkvöldi urðu þess valdandi að áhyggjufullir aðstandendur fanga hringdu í forstöðumann langt fram eftir nóttu og óttuðust hið versta. Reyndin var hins vegar sú að vegna eineltismáls sem kom upp á einum ganginum voru fimm fangar lokaðir inni fyrr en vanalega og kveikti einn þeirra í ruslafötu í mótmælaskyni. Klefinn hans fylltist af reyk og reyndi hann sjálfur að slökkva eldinn með takmörkuðum árangri. ,,Kannski hefur átt að vera uppátæki sem ekki átti að fara svona langt, en það gerði það. En það var brugðist strax við og mjög litlar skemmdir. Enginn sem bar skaða af þessu. En alvarlegt að eldur sé kveiktur í húsnæði eins og þessu þar sem menn eru innilokaðir í klefum," segir Margrét Frímannsdóttir forstöðumaður á Litla-Hrauni. Viðbrögð starfsfólk eru sögð hafa verið kórrétt, þó komu slökkvilið og lögregla á vettvang í öryggisskyni. Litið er á málið sem alvarlegt agabrot og fer lögreglan á Selfossi með rannsókn þess. Agabrot, einkum vegna fíkniefnamála, eineltis og ofbeldis eða hótana þar um eru algeng í fangelsinu. ,,Já þau eru það náttúrulega. Hert eftirlit, þannig að agabrot á síðasta ári voru yfir 180, en þess ber að geta að það er tiltölulega lítill hópur sem á langstærsta hluta þessara agabrota," segir Margrét. Einelti er viðvarandi vandamál en hefur batnað mikið með árunum og farið minnkandi. ,,Oft á tíðum þessir kynferðisafbrotamenn sem verða fyrir þessu og svo þeir sem geta borið hönd yfir höfuð sér," segir Annþór Kristján Karlsson formaður Afstöðu félags fanga.
Tengdar fréttir Búið að slökkva eld á Litla-Hrauni Margrét Frímannsdóttir, forstöðumaður fangelsisins á Litla-Hrauni, segir að búið sé að slökkva eld sem kom upp í fangaklefa fyrr í kvöld. Slökkviliðsmenn eru nú að reykræsta klefann. Ekki var um mikinn reyk að ræða. Hún segir að hvorki fanga né starfsfólk hafi sakað vegna málsins. Eldsupptök eru að óljós, að sögn Margrétar. 10. febrúar 2009 21:52 Eldur á Litla-Hrauni Eldur kom upp í fangaklefa á Litla-Hrauni í kvöld og fóru slökkviliðsmenn Brunavarna Árnessýslu á staðinn. Að sögn lögreglunnar á Selfossi var um minniháttar eld að ræða og er nú verið að reykræsta fangaklefann. 10. febrúar 2009 21:33 Uppgjör fanga leiddi til íkveikju Aðstandendur fanga á Litla Hrauni reyndu að fá upplýsingar um fanga fram til þrjú um nóttina að sögn Páls Winkels, fangelsismálastjóra, en hann gagnrýnir fréttaflutning dv.is harðlega. Þar var sagt frá því að kveikt hefði verið eldur í fjórum fangaklefum og að uppreisnástand ríkti á Litla Hrauni. Þetta segir Páll alrangt, einn fangi hafi kveikt í ruslafötu og eldurinn slökktur stuttu síðar. Ástæðan var uppgjör tveggja fanga. 11. febrúar 2009 12:49 Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira
Búið að slökkva eld á Litla-Hrauni Margrét Frímannsdóttir, forstöðumaður fangelsisins á Litla-Hrauni, segir að búið sé að slökkva eld sem kom upp í fangaklefa fyrr í kvöld. Slökkviliðsmenn eru nú að reykræsta klefann. Ekki var um mikinn reyk að ræða. Hún segir að hvorki fanga né starfsfólk hafi sakað vegna málsins. Eldsupptök eru að óljós, að sögn Margrétar. 10. febrúar 2009 21:52
Eldur á Litla-Hrauni Eldur kom upp í fangaklefa á Litla-Hrauni í kvöld og fóru slökkviliðsmenn Brunavarna Árnessýslu á staðinn. Að sögn lögreglunnar á Selfossi var um minniháttar eld að ræða og er nú verið að reykræsta fangaklefann. 10. febrúar 2009 21:33
Uppgjör fanga leiddi til íkveikju Aðstandendur fanga á Litla Hrauni reyndu að fá upplýsingar um fanga fram til þrjú um nóttina að sögn Páls Winkels, fangelsismálastjóra, en hann gagnrýnir fréttaflutning dv.is harðlega. Þar var sagt frá því að kveikt hefði verið eldur í fjórum fangaklefum og að uppreisnástand ríkti á Litla Hrauni. Þetta segir Páll alrangt, einn fangi hafi kveikt í ruslafötu og eldurinn slökktur stuttu síðar. Ástæðan var uppgjör tveggja fanga. 11. febrúar 2009 12:49