Bergþór sækist eftir öðru sæti í Norðvestur-kjördæmi 11. febrúar 2009 15:15
Bergþór Ólason, fyrrverandi aðstoðarmaður samgönguráðherra, hefur ákveðið að bjóða sig fram til 2. sætis í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi vegna Alþingiskosninganna í vor. Bergþór tilkynnti þessa ákvörðun sína á kjördæmisráðsþingi Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi sem haldið var í Borgarnesi sl. laugardag. „Það eru spennandi tímar framundan í stjórnmálunum, sjaldan hafa menn horfst í augu við jafn risavaxin verkefni og nú á hinum pólitíska vettvangi," segir Bergþór í tilkynningu. „Nú ganga sjálfstæðismenn til prófkjörs í öllum kjördæmum og kjósa flokknum nýja forystu á landsfundi. Þegar þessi endurnýjun verður um garð gengin tel ég að gömlu sjálfstæðisgildin verði í forgrunni á nýjan leik og að Sjálfstæðisflokkurinn mæti öflugur til kosninga í lok apríl. Tengsl mín við kjördæmið ásamt þekkingu og skilningi á málefnum þess tel ég að muni styrkja listann og hjálpa til við að tryggja okkur góða kosningu í vor. Í þennan slag vil ég gefa kost á mér" Þá segir að Bergþór sé fæddur á Akranesi og er búsettur þar, en ólst upp í Borgarnesi. Hann gekk í Grunnskóla Borgarness og síðan í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Að stúdentsprófi loknu lá leiðin í Háskóla Íslands þar sem hann nam viðskiptafræði við Viðskipta- og hagfræðideild. Þar var hann virkur í félagslífi viðskiptadeildar. Sat í stjórn Mágusar. Var formaður Íslandsdeildar NESU sem eru samtök norrænna viðskipta- og hagfræðinema ásamt því að vera fulltrúi nemenda á deildarfundum. Jafnframt var hann virkur í starfi Vöku. Eins og fyrr sagði er Bergþór fyrrverandi aðstoðarmaður samgönguráðherra en því til viðbótar hefur hann meðal annars starfað sem lögregluþjónn í sumarafleysingum, hjá Heklu, Lýsingu og Kaupþingi en í dag er hann sjálfstætt starfandi ráðgjafi.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira