Auðveldara að verða forseti Íslands en formaður VR Breki Logason skrifar 11. febrúar 2009 16:55 Lúðvík Lúðvíksson formannsframbjóðandi í VR.
Lúðvík Lúðvíksson sem ætlar að bjóða sig fram til formanns VR segir að nú sé búið að setja saman lista sem skilað verði inn í fyrramálið. Hann segir núverandi formann og trúnaðarráð eiga von á alvöru mótframboði en einfaldara sé að bjóða sig fram til forseta Íslands en til formanns í VR. Hann gagnrýnir hversu knappur tími sé til kosninga. Þær fara fram 23.febrúar. „Bæði Halldór Grönvold og Gunnar Páll höfðu nefnt við mig að kosningar gætu farið fram 10.mars. Það var hinsvegar aldrei staðfest en ég var ánægður með hversu lengi kosningaglugginn væri opinn og fannst þetta eðlilegur tímarammi. Þær fara hinsvegar fram 23.febrúar sem er mjög knappur tími," segir Lúðvík í samtali við Vísi. Hann segir tæplega 28 þúsund félagsmenn í VR og erfitt verði því að fara í fyrirtækin og kynna sig og sinn lista. Hann segir að hópur sem unnið hafi að framboðinu sé nú búinn að setja saman lista. Hann samanstendur af Lúðvíki sem formannsefni, þremur einstaklingsframboð og svo fjórum í svokallaðri listakosningu ásamt 82 trúnaðarráðsmönnum. „Þessu skilum við inn í fyrramálið og þá erum við komin með raunverulegt mótframboð. Það þarf 300 stuðningsmenn við þennan lista og 40 undirskriftir fyrir þá sem eru í einstaklingsframboðinu. Það er því trúlega einfaldara að ná sér í stuðningsmenn til þess að verða forseti Íslands en að fara fram í félaginu VR, sem á eingöngu að snúast um hinn almenna félagsmann," segir Lúðvík en hópurinn er búinn að safna tæplega 400 stuðningsmönnum við listann. Aðspurður hvernig hann haldi að kosningarnar fari segir Lúðvík ómögulegt að segja. „Ég er búinn að fara víða og það er almenn óánægja hjá félagsmönnum. Maður vonar því að það verði manni sjálfum í hag og listanum. Aðal málið er auðvitað að listinn nái kosningu. Eina ástæða þess að Gunnar Páll situr þarna áfram er sú að trúnaðarráðið styður hann."
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fleiri fréttir Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sjá meira