Silfurdrengir bjóða 400 manns í indverskan mat í partíi ársins 25. júní 2009 03:00 Logi Geirsson Silfurveislan sem Björgvin Páll og Logi Geirsson blása til verður ein af veislum ársins. Kannski tímanna tákn að það skuli vera íþróttakappar en ekki útrásarvíkingar sem haldi það enda full innistæða fyrir því sem Logi og Björgvin hafa verið að gera.Fréttablaðið/Arnþór
Logi Geirsson og Björgvin Páll Gústavsson halda stærsta partí ársins á skemmtistaðnum Oliver á laugardagskvöldið. Fjögur hundruð vinir þeirra hafa fengið boðskort og ekkert verður til sparað þegar hárgelið The Silver verður kynnt. „Þetta verður svolítið ýkt, svona Hollywood-þema með indverskum mat. Ekki einhverjum pinnamat heldur bara alvöru matur handa fjögur hundruð manns,“ segir Logi Geirsson, silfurdrengur með meiru. Um helgina ætla hann og Björgvin Páll Gústavsson að halda veglegt kynningarpartý á skemmtistaðnum Oliver í miðbæ Reykjavíkur. Og þangað verður stefnt öllum þeim sem hafa lagt sitt á vogarskálarnar við að ýta úr vör hárgelinu The Silver, sem þeir félagar hafa lagt nótt við nýtan dag við að koma á íslenskan markað. Fyrsti söludagur hefur verið settur þann 1. júlí og ríkir mikil spenna í herbúðum silfurdrengjanna enda er langþráður draumur, sem vaknaði hjá Loga fyrir fimm árum, að verða að veruleika. Logi er ekki alveg reiðubúinn til að uppljóstra hverju gestir silfurteitisins mega eiga von á. Hann staðfestir hins vegar að mönnum eigi eftir að líða eins og alvöru Hollywood-stjörnum. Því þarna verða lífverðir á hverju strái, rauður dregill og ljósmyndarar til að festa á filmu þennan sögulega viðburð. Logi vildi ekki staðfesta að sverð- og eldgleypir yrði á staðnum né hvaða tónlistarmenn myndu troða upp. Hins vegar er alveg ljóst að það meiri eftirspurn en minni eftir því að hin goðsagnakennda hljómsveit Logi og Lundarnir troði upp í tilefni dagsins. „Ég vil ekki staðfesta eitt eða neitt, það er hins vegar alveg ljóst að þetta yrði flottur vettvangur fyrir okkur að frumsýna hljómsveitina hér á landi,“ segir Logi, dularfullur. Hins vegar er ljóst að Idol-Lísa mun troða upp þetta kvöld ef marka má fréttatilkynningu sem umboðsmaður hennar, Einar Bárðarson, sendi frá sér. Logi upplýsir að dolla með gelinu verði við hvern vask á Oliver þannig að áhugasamir geta fengið að prófa vöruna. Og kannski verður eitthvað eftir þegar almenningi verður hleypt inn á Oliver á miðnætti. Björgvin Páll Gústavsson var staddur í Svíþjóð á markmannsnámskeiði þegar Fréttablaðið náði tali af honum. Hann er væntanlegur til landsins í dag og mun þá hella sér af fullum krafti útí undirbúninginn fyrir silfurteitið. „Þetta er bara mikið tilhlökkunarefni, loksins er þetta að fara af stað og vonandi á veislan bara eftir að kveikja í fólki.“ Þess má geta að heimasíða gelsins er thesilver.is. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira