Stjórnvöld taki afstöðu til bóta fyrir börn á vistheimilum Magnús Már Guðmundsson skrifar 25. júní 2009 12:40 Róbert R. Spanó, lagaprófessor og formaður nefndarinnar.
Nefnd um starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn á vegum ríkisins og sérskóla, sem áður voru starfandi, skilar áfangaskýrslu á næstu vikum. Formaður nefndarinnar segir það verkefni stjórnvalda að taka afstöðu til þess hvort og þá með hvaða hætti skuli koma til móts við vistmenn á heimilunum og nemendur sérskóla með bótum hafi þeir sætt illri meðferð eða ofbeldi. Nefndin kannaði áður starfsemi Breiðavíkurheimilisins og skilaði svartri skýrslu um vistheimilið í byrjun árs 2008. Þar kom fram að vistmenn máttu þola ofbeldi, einelti og jafnvel kynferðisofbeldi á vistunartímanum. Eftir að skýrslan var lögð fram og rædd á Alþingi vor 2008 fékk nefndin nýtt erindisbréf. Róbert R. Spanó, lagaprófessor og formaður nefndarinnar, segir að frá því í apríl á síðasta ári hafi nefndin unnið hörðum höndum og rætt við fjölmarga varðandi könnun á tilteknum heimilum, meðal annars Heyrnleysingjaskólanum, Skólaheimilinu Bjargi og Vistheimilinu Kumbaravogi. Hann segir rannsóknaraðferðina í meginatriðum efnislega samsvarandi vinnu nefndarinnar við gerð Breiðavíkurskýrslunnar. Róbert vill að svo stöddu ekki tjá sig um hvort nefndin telji meiri líkur en minni á að brot hafi verið framin á þeim vistheimilum og sérskóla sem nefndin hefur haft til umfjöllunar. Það skýrist þegar áfangaskýrslan verði lögð fram.Breiðavíkurskýrslan var kynnt í febrúar 2008. Mynd/GVA„Ef niðurstaða okkar verður sú að við teljum meiri líkur en minni á einhverskonar lögbroti, eða að börnin hafi sætt illri meðferð eða ofbeldi, þá gildir sama tillaga og kemur fram í Breiðavíkurskýrslunni hvað varðar hugsanlegar bætur. Við munu ekki endurtaka hana heldur vísa í umfjöllun okkar þar," segir Róbert. Erindisbréf nefndarinnar gerir ráð fyrir tveimur áfangaskýrslum og lokaskýrslu árið 2011. Róbert segir að önnur vistheimili verði tekin til skoðunar í næstu áfangaskýrslu sem áætlað er að skila næsta sumar.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Sjá meira