Semur fyrsta Facebook-lagið 20. nóvember 2009 07:00 Mummi hefur sent frá sér fyrsta Facebook-lagið. Það heitir Hver er statusinn hjá þér? „
Ég er eins og aðrir. Ég kíki reglulega á Facebook og tékka á „statusnum“,“ segir Guðmundur Annas Árnason, eða Mummi, sem hefur gefið út nýtt lag um Facebook, Hver er statusinn hjá þér? Mummi segist vera fyrsti Íslendingurinn til að gefa út lag um Facebook og er bara ansi ánægður með það. „Það eru allir að leika sér á Facebook og ég skildi aldrei að enginn var búinn að semja lag um það. Þegar ég fékk hugmyndina ákvað ég að drífa lagið í gegn áður en einhver annar færi að semja lag um Facebook,“ segir hann og bætir við að textinn hafi verið fljótur að fæðast. „Það sem er svo auðvelt við að semja texta um Facbook er að þarna eru mörg orð og heiti sem fólk er að nota. Maður getur gripið þau á lofti og sniðið í kringum þau.“ Mummi er einnig söngvari í Klaufunum frá Selfossi og hefur gefið út með þeim tvær plötur. Sólóferill er þó eitthvað sem heillar hann og á næsta ári hefjast upptökur á nýju lagi í Stúdíó Sýrlandi sem mun fylgja eftir vinsældum Facebook-lagsins. Þrátt fyrir að Mummi kíki öðru hverju á Facebook segist hann ekki eyða miklum tíma þar. Ástæðan er sú að hann rekur Kaffi Krús á Selfossi þar sem hann hefur í nógu að snúast. Þar hefur hann útbúið sérhannaðan Klaufamatseðill fyrir hvern og einn í hljómsveitinni sem gestir staðarins geta einnig pantað sér. Matseðillinn hefur heldur betur hitt í mark, enda hélt hann Klaufunum söddum og sælum er þeir skelltu sér í upptökuleiðangur til Nashville á síðasta ári. - fb
Mest lesið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira