Erlent

Kreppan varð stjórn að falli

Leiðtogi Sósíaldemókrata fagnar niðurstöðu þingsins.
fréttablaðið/AP
Leiðtogi Sósíaldemókrata fagnar niðurstöðu þingsins. fréttablaðið/AP
Rúmeníustjórn missti þingmeirihluta sinn í gær þegar vantrauststillaga á stjórnina var samþykkt. Meirihluti þingmanna telur að stjórninni hafi ekki tekist að koma landinu út úr efnahagskreppunni.

Emil Boc forsætisráðherra segist þó aðeins hafa tapað einni orrustu en ekki stríðinu. Hann sakar þingmennina um að hafa látið stjórnast af ótta við að missa vel útilátin lífeyrisréttindi, verði umbótafrumvarp stjórnarinnar í þeim málum að lögum.

Staða stjórnarinnar á þingi veiktist í síðustu viku þegar Sósíaldemókratar gengu úr henni.- gb



Fleiri fréttir

Sjá meira


×