Segir stórveldistíma bankagjafaþega liðinn 12. febrúar 2009 15:45 Ólafur Friðrik Magnússon fyrrverandi borgarstjóri á góðri stundu í miðborg Reykjavíkur.
Á fundi borgarráðs í morgun var rætt öðru sinni um fyrirætlanir varðandi framhald framkvæmda við Tónlistar- og ráðstefnuhús við gömlu höfnina og um forgangsröðun og fjármögnun framkvæmda í miðborginni. Af því tilefni lýsti Ólafur F Magnússon borgarfulltrúi F-listans yfir andstöðu sinni við þá forgangsröðun Sjálfstæðisflokksins og stuðningsflokka hans í borgarstjórn að halda áfram uppbyggingu þeirrar ofurmiðborgar sem fyrirhugað var að reisa á hafnar- og slippasvæðinu, í stað þess að halda áfram með mun hagkvæmari menningarlegri og ferðaiðnaðarvænni uppbyggingu gömlu miðborgarinnar í Kvosinni og við Laugaveg. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ólafi sem hann sendi frá sér nú seinni partinn. Hann segir ennfremur að brýna nauðsyn beri til að endurskoða yfirgengilegar og rándýrar áætlanir um miðborgina frá þeim tíma sem sjálfhverfuauðvaldið réði málum í landi og borg fram að hruni þess í októbermánuði síðast liðnum. „Tryggja þarf að ný miðborg á hafnar- og slippasvæðinu taki meira mið af fínleika gömlu miðborgarinnar og að horfið verði frá tröllauknum fyrirætlunum um rándýr neðanjarðargöng og óhagkvæmar ofurbyggingar í miðborginni í takt við skýjaborgir sjálfstæðismanna um allt að 30.000 manna byggð á landfyllingum og eyjum utan strandlengjunnar í Reykjavík," segir Ólafur. Þá segir hann að taka verði tillit til þeirrar staðreyndar að við búum í fámennu samfélagi með takmarkaðan aðgang að fjármagni og að stórveldistími bankagjafaþega og útrásarvíkinga Sjálfstæðisflokks og Framsóknaflokks sé liðinn undir lok.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira