Innlent

Ekki hjálpa þeim sem geta staðið undir lánum sínum

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ.
Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ.

Það á að lækka höfuðstóla íbúðalána og skipta áhættu af gengisþróun og verðbólgu á milli þeirra sem taka lán og veita þau. Þetta kemur fram í ákalli fjögurra hagsmunasamtaka og talsmanns neytenda til stjórnvalda. Það á ekki að hjálpa þeim sem geta staðið undir lánum sínum, að mati forseta ASÍ, sem segir inngöngu í Evrópusambandið einu leiðina til að losa lántakendur undan gengisóvissu og verðtryggingu.

Félag fasteignasala, Hagsmunasamtök heimilanna, Húseigendafélagið, Húsnæðissamvinnufélagið Búseti á Norðurlandi og talsmaður neytenda sendu í gær frá sér sameiginlegt ákall til stjórnvalda.

Kallað er á tvennt. Í fyrsta lagi að lækka verulega höfuðstóla allra íbúðalána vegna gengishruns krónunnar og verðbólgu til að koma í veg fyrir að fjöldi manna lendi í þroti og lífga við fasteignamarkaðinn. Í öðru lagi að stjórnvöld setji ný lög um íbúðalán þar sem gætt verði jafnræðis milli lántakenda og fjármagnseigenda, í stað núverandi stöðu þar sem áhætta af þróun gengis og óvissu um markaðsverð er lögð að fullu á lántakendur.

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ segir sambandið hlynntara því að hjálpa þeim sem þurfa hjálp. Benedikt Sigurðsson framkvæmdastjóri Búseta á Norðurlandi segir almenna lækkun höfuðstóla hins vegar snúast um jafnræði.

Gylfi segir ASÍ lengi hafa verið áfram um að óvissan í efnahagslífinu leggist ekki eingöngu á lántakendur heldur líka lánveitendur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×