Innlent

Hafa áhyggjur af löggæslumálum í Reykjavík

Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar.
Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar.

Samfylkingin lýsir miklum áhyggjum af hugmyndum um að lagðar verði niður hverfislöggæslustöðvar í Breiðholti og Grafarvogi. Þessar hugmyndir eru komnar fram af hálfu lögreglunnar og hafa verið kynntar borgarstjóra.

Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar segir að ætlunin sé að Árbæjarhverfi og Grafarvogshverfi verði þjónað frá Mosfellsbæ og Breiðholt úr Kópavogi auk þess sem Vesturbæ Reykjavíkur eigi að sinna frá Seltjarnarnesi.

„Þessar breytingar myndu rjúfa hina nánu samvinnu hverfislöggæslu og þjónustumiðstöðva borgarinnar sem deila húsnæði í Mjódd í Breiðholti og Miðgarði í Grafarvogi," segir Dagur í tilkynningu.

Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar lögðu fram fyrirspurn um málið á fundi borgarráðs sem lauk fyrir stundu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×