Innlent

Búddahof rís við Hádegismóa

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að úthluta lóð til tælenska félagsins, Thai Temple in Iceland Foundation, undir Búddahof.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Borgarráði. Þar segir ennfremur að lóðin sem er númer tólf við hádegismóa er u.þ.b 4.235 fm og er úthlutað bygginarrétti fyrir hofið og tengdar byggingar.

Einnig var samþykkt að engin gatnagerðargjöld skuli greidd af Búddahofinu eða öðrum byggingum á lóðinni, sem þjóna söfnuði búddista á Íslandi og eru í samræmi við gildandi deiliskipulag. Önnur gjöld vegna lóðarinnar og mannvirkja á henni skulu greidd samkvæmt gjaldskrá á hverjum tíma.

Leigusamningur verður gerður um lóðina þegar lokið hefur verið við að steypa sökkla og plötu undir Búddahofið. Leigutíminn er 50 ár og framlengist sjálfkrafa um önnur 50 ár, nema Reykjavíkurborg hafi með árs fyrirvara tilkynnt lóðarhafa að ekki komi til framlengingar lóðarleigusamningsins.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×