Icesave á dagskrá á mánudag 23. desember 2009 01:30 andstaðan Stjórnarandstaðan hefur barist gegn samkomulagi stjórnvalda um Icesave.
Þing kemur saman milli jóla og nýárs til að taka Icesave-málið til þriðju umræðu. Verður þingfundur á mánudag og hugsanlega dagana tvo á eftir. Sjaldgæft er að þingfundir séu milli hátíða. Hefur það raunar aðeins gerst þrívegis á lýðveldistímanum, árin 1958, 1987 og 1994. Árið 1994 voru lánsfjárlög, ráðstafanir í ríkisfjármálum og staðfesting á stofnaðild að GATT-samningnum enn óafgreidd þegar jólin gengu í garð. Bar því nauðsyn til að funda að þeim loknum og afgreiða málin fyrir áramót. Árið 1987 voru fjárlög næsta árs enn ósamþykkt fyrir jól. Fundaði þingið því 28. desember það ár. Auk samþykktar fjárlaganna voru gerðar breytingar á lögum um stjórn fiskveiða og söluskatt. Tvö mál voru rædd á þingfundi 29. desember 1958. Voru bæði tilkomin vegna óafgreiddra fjárlaga. Annað snerist um bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði en með hinu var ráðherra veitt heimild til að fresta ákvörðun framlaga og iðgjalda til almannatrygginga þar til fjárlög hefðu verið sett. Icesave-málið var afgreitt úr fjárlaganefnd í gær. Ósamkomulag er milli stjórnarliða og stjórnarandstæðinga og því allt eins viðbúið að umræður um málið taki drjúgan tíma. Þingsköp koma þó í veg fyrir að ræðumenn geti talað að vild.- bþs
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Fleiri fréttir Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Sjá meira