Beðið eftir sprengingu 23. desember 2009 04:45 Eldfjallið Mayon Hefur gosið nærri 40 sinnum síðustu fjórar aldirnar. fréttablaðið/AP
Eldfjallið Mayon á norðanverðum Filippseyjum er eins og tifandi sprengja þessa dagana. „Hættuleg sprenging gæti orðið í dag eða næstu dögum," segir Renato Solidum eldfjallafræðingur. Nærri allir íbúar í næsta nágrenni fjallsins, um 45 þúsund talsins, hafa nú forðað sér á öruggari slóðir. Flestir hafast þeir við í neyðarskýlum, skólum og íþróttahúsum í nærliggjandi byggðum, en sumir gista hjá ættingjum og vinum. Stöðug aska streymir úr fjallinu og hraun vellur niður hlíðarnar. Jarðskjálftar mælast með stuttu millibili og telja jarðfræðingar verulegar líkur á sprengigosi. Enn eru þó um tvö þúsund manns í innan við átta kílómetra fjarlægð frá fjallinu, en það er sú fjarlægð sem miðað er við þegar fólk er hvatt til að forða sér. Hermenn og lögregluþjónar hafa verið á eftirlitsferðum um svæðið til að hvetja fólk til að fara á brott. Síðast gaus Mayon árið 2006. Þá voru 30 þúsund manns fluttir frá hættuslóðunum. Árið 1979 kostaði gos í fjallinu 79 manns lífið. Fjallið hefur gosið nærri 40 sinnum síðan 1616. Mannskæðasta gosið varð árið 1814, en þá létu meira en 1.200 manns lífið. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Erlent Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Innlent „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Innlent Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Innlent Eldur kviknaði í Strætó Innlent Fleiri fréttir „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Sjá meira