Aukinn stuðningur raunhæft markmið 5. október 2009 03:45 Eiríkur Bergmann Forstöðumaður Evrópufræðasetursins á Bifröst segir raunhæft að stefna að því að opinber stuðningur við hefðbundinn íslenskan landbúnað aukist við aðild Íslands að ESB.
Það á að vera samningsmarkmið Íslendinga í viðræðum við Evrópusambandið um landbúnaðarmál að sækjast eftir auknum stuðningi við hefðbundinn fjölskyldubúskap í sveitum, segir Eiríkur Bergmann, dósent og forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst. Hann segir að stefna eigi að því að bændur sem búa á fjölskyldubúi og stunda sauðfjár- eða kúabúskap fái aukna styrki ef Ísland gengur í Evrópusambandið. Aðild að sambandinu bitni aðallega á kjúklinga- og svínabúum á landinu. Eiríkur segir að Evrópusambandið hafi verið að hverfa frá þeirri stefnu, sem sett var á fót þegar landbúnaður í álfunni annaði ekki eftirspurn eftir matvælum. Þá var hvatt til aukinnar framleiðslu. Nú er offramleiðsla orðin vandamál í álfunni. „Á síðustu tíu árum hefur landbúnaðarstefnan verið að breytast og styrkjakerfi ESB fellur vel að hefðbundnum íslenskum landbúnaði sem er byggður upp á fjölskyldubýli,“ segir Eiríkur. Breytt stefna leggi áherslu á að vernda þá arfleifð og menningarlegu sérstöðu sem fólgin er í dreifðri búsetu og landbúnaði í hverju aðildarríki. „Samninganefnd Íslands mun fá góðar undirtektir ef hún leggur áherslu á þessa þætti.“ Eiríkur segir að stuðningur við iðnaðarframleiðslu á borð við kjúklinga- og svínakjötsframleiðslu sé almennt á undanhaldi í landbúnaðarstefnu ESB og hið sama muni eiga við um þá framleiðslu hér á landi. Óvíst sé hvaða stuðning verði hægt að finna fyrir grænmetisræktendur en slíkt sé alls ekki útilokað. Hins vegar eigi sauðfjárbúskapur og kúabúskapur ekki að þurfa að kvíða niðurstöðu aðildarviðræðna. Þvert á móti sé viðbúið að niðurstaðan geti falið í sér aukinn stuðning við slíkan landbúnað á Íslandi. Þótt horfið verði frá því íslenska kerfi, sem tengir stuðning við framleiðslu og verð á framleiðslunni, muni taka við beinir styrkir til bænda sem byggjast á stuðningi við landnýtingu, menningararfleifð og sérstöðu að vega þá skerðingu upp og jafnvel meira til. Að auki geti Íslendingar áfram stutt landbúnað upp að ákveðnu marki innan ESB, í samræmi við reglu um stuðning við landbúnað á norðurslóðum. Finnar og Svíar geti stutt sinn landbúnað um 35% til viðbótar stuðningi ESB. Í næstu viku kemur á markað bók eftir Eirík Bergmann, sem heitir frá Evróvisjón til evru. Eiríkur segir að henni sé ætlað að vera aðgengilegt upplýsingarit fyrir almenning um Evrópusambandið. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Innlent Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Erlent Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Innlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Fleiri fréttir Stefán Einar og Diljá Mist mæta Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Sjá meira