Blásið til veislu á Patreksfirði 27. maí 2009 06:00 Ari Alexander á magnaðar myndir frá búsáhaldabyltingunni en brot úr heimildarmynd hans, Aumingja Ísland, verður sýnt á heimildarmyndahátíðinni Skjaldborg.
Tvö undanfarin ár hefur áhugafólk um heimildarmyndir og kvikmyndagerðarmenn flykkst til Patreksfjarðar. Ástæðan er einföld: heimildarmyndahátíðin Skjaldborg. Árið í ár er engin undantekning. Þrjátíu heimildarmyndir af öllum stærðum og gerðum, um allt milli himins og jarðar, verða sýndar á hátíðinni. Sérstakur heiðursgestur hátíðarinnar verður Þorfinnur Guðnason en heimildarmynd hans og Andra Snæs Magnasonar varð fyrir skemmstu aðsóknarmesta heimildarmyndin í sögu Íslands. Sýndar verða allar myndir Þorfinns á hátíðinni, þeirra á meðal er löngu horfin mynd sem aldrei hefur komið fyrir sjónir fólks áður en hún heitir Grandarar og er um lífið og tilveruna á Grand Rokki. Töluverð gróska hefur reyndar verið í heimildarmyndagerð að undanförnu; Sólskinsdrengur Friðriks Þórs Friðrikssonar naut mikillar hylli og var, allt þar til Draumalandið var frumsýnt, aðsóknarmesta heimildarmyndin. Heimildarmyndagerðarmenn fóru margir hverjir á fullt þegar blásið var til búsáhaldabyltingar við Austurvöll í janúar á þessu ári og verður sýnd stutt stikla úr einni þeirra; Aumingja Ísland eftir Ara Alexander. „Þetta er náttúrulega ekki bara um byltinguna, eina og sér, heldur líka af hverju þetta hrun varð,“ segir Ari sem stefnir að því að frumsýna myndina seint í haust. „Annars heyrist manni bara á fólki að það sé önnur bylting í vændum, þannig að þetta er kannski bara endalaust.“ Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær er Ari einn fárra sem á lifandi myndir af því þegar táragasinu var beitt á Austurvelli. Hann á jafnframt nokkuð einstæðar myndir af harkalegu viðmóti lögregluþjóns í garð mótmælanda þegar byltingin stóð sem hæst. „Auðvitað eru góðir menn í lögreglunni en manni fannst þetta nokkuð brútalt og blóðugt.“ Leikstjórinn nýtur liðsinnis góðra manna, meðal þeirra eru Jón Proppé, Friðrik Þór Friðriksson og svo hagfræðingurinn Magnús Árni Skúlason og rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson. Ari kveðst hafa reynt að fá hina svokölluðu útrásarvíkinga í viðtöl. „Því auðvitað hef ég mína sýn á þessa sögu en að sjálfsögðu vil ég leyfa fólki að svara fyrir sig,“ segir Ari en auðjöfrarnir hafa verið frekar tregir í taumi.
Mest lesið Karl Th. Birgisson er látinn Lífið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Bob Mackie er látinn Lífið Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tíska og hönnun Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Sjá meira