Rúmlega 33 þúsund skora á forsetann 12. desember 2009 04:30
Rúmlega 33 þúsund Íslendingar höfðu í gær skráð nöfn sín á áskorun til forseta Íslands um að synja Icesave-lögum staðfestingar á vef Indefence-hópsins. Fjöldi þeirra sem undirritað hafa áskorun Indefence-hópsins er fyrir nokkru kominn yfir fjölda þeirra sem skoruðu á forsetann að synja fjölmiðlalögum ríkisstjórnarinnar staðfestingar sumarið 2004. Þá skoruðu 31.752 Íslendingar á forsetann, sem í kjölfarið synjaði lögunum staðfestingar með tilvísun í gjá milli þingvilja og þjóðarvilja í málinu. Jóhannes Þ. Skúlason, meðlimur Indefence, segist mjög ánægður með þann mikla fjölda sem skrifað hafi undir áskorunina. Þó verði að taka tillit til þess að eftir sé að keyra listann saman við þjóðskrá. Það verði ekki gert fyrr en Alþingi hafi afgreitt Icesave-frumvarpið. Ef marka má stikkprufur sem gerðar hafa verið eru fáar undirskriftir rangar, og yfirgnæfandi meirihluti er frá fólki á kosningaaldri, segir Jóhannes. Augljóslega röngum undirskriftum sé eytt út daglega. Samkvæmt nýrri könnun MMR fyrir Viðskiptablaðið vilja 69,2 prósent þeirra sem taka afstöðu að forsetinn synji lögunum staðfestingar og vísi þeim til þjóðaratkvæðagreiðslu. Alls vilja 30,8 prósent að hann staðfesti lögin. Svarendur í könnuninni voru 924 á aldrinum 18 til 67 ára, valdir af handahófi úr hópi álitsgjafa MMR. - bj
Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Fleiri fréttir Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Sjá meira