Gefendur ráða hvort framlög eru upplýst 16. júlí 2009 03:00 Ríkisstjórn Íslands Styrkjendur stjórnmálaflokka geta sjálfir ákveðið hvort upplýst verði um fjárframlög þeirra á árunum 2002 til 2006 samkvæmt drögum að nýju frumvarpi um fjármál stjórnmálaflokka.Fréttablaðið/Vilhelm
Ef gefendur fjár til stjórnmálaflokka á árunum 2002 til 2006 vilja ekki að nöfn þeirra verði opinberuð verður slíkt ekki gert. Þetta kemur fram í nýjustu drögunum að frumvarpi um fjármál stjórnmálasamtaka. Í kjölfar uppljóstrana í vor um ofurstyrki til stjórnmálaflokka skipaði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra nefnd um endurskoðun laga um fjármál stjórnmálaflokka. Nefndin sendi Persónuvernd drög að frumvarpi til umsagnar. Persónuvernd leggur áherslu á að nöfn einstaklinga sem gefa fé til stjórnmálaflokka verði ekki opinberuð nema með samþykki viðkomandi, enda séu stjórnmálaskoðanir viðkvæmar persónuupplýsingar. Í frumvarpsdrögunum kemur meðal annars fram að Ríkisendurskoðun skuli vinna úr upplýsingum frá stjórnmálasamtökum og birta á samræmdan hátt niðurstöður fyrir hver stjórnmálasamtök og hvern frambjóðanda fyrir árin 2002 til 2006. „Tilgreina skal sérstaklega þá aðila sem veitt hafa framlag að fjárhæð 500.000 krónur eða meira. Hafi aðili krafist trúnaðar um framlög sín til viðkomandi stjórnmálsamtaka skal engu að síður birta upplýsingar um fjárhæð framlagsins en upplýsingar um heiti viðkomandi aðila skulu ekki birtar án samþykkis hans. Sé um einstakling að ræða skal birting á nafni hans sem styrkveitanda ávallt byggja á samþykki hans,“ segir í frumvarpsdrögunum. Samkvæmt ofangreindu ákvæði þurfa stjórnmálaflokkar að gefa upp fjárhæð hvers styrks á árunum 2002 til 2006 en þurfa ekki að upplýsa um nöfn gefendanna, hvorki einstaklinga né fyrirtækja. Eins og áður segir tekur frumvarpið sem er í smíðum til áranna 2002 til 2006 þegar engin lög mæltu fyrir um upplýsingaskyldu stjórnmálasamtaka og frambjóðenda vegna fjáröflunar. Þremur dögum fyrir jól á árinu 2006 setti hins vegar Alþingi fræg lög sem tóku gildi að hluta í ársbyrjun 2007 og að hluta um mitt ár 2007. Í þeim er mælt fyrir um að stjórnmálasamtökum og frambjóðendum sé óheimilt að taka á móti hærri framlögum frá lögaðilum og einstaklingum en sem nemur 300 þúsund krónum á ári og að birta skuli nafn allra lögaðila sem gefa viðkomandi peninga. Einnig er óheimilt að taka við fjárframlögum frá óþekktum gefendum. gar@frettabladid.is
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Innlent Fleiri fréttir Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Sjá meira