Ríkisendurskoðun fær bókhald flokkanna til skoðunar 16. júlí 2009 13:06
Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkurinn, Vinstri hreyfingin - grænt framboð, Framsóknarflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn hafa ásamt Borgarahreyfingunni undirritað samkomulag um að Ríkisendurskoðun verði falið, með sérstakri lagaheimild, að veita viðtöku og birta upplýsingar um öll bein fjárframlög til þeirra sem og önnur framlög sem metin eru að fjárhæð 200.000 kr. eða meira á árunum 2002 til 2006 að báðum árum meðtöldum. Í tilkynningu segir að tímabilið nái til þess tíma þegar lög nr. 162/2006 um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og upplýsingaskyldu þeirra tóku gildi. Miðast þetta tímabil við geymsluskyldu bókhaldsgagna samkvæmt lögum um bókhald. Með yfirlýsingunni skuldbinda framangreind stjórnmálasamtök sig, að lagaheimild fenginni, til að veita Ríkisendurskoðun samkvæmt bestu vitneskju allar fyrirliggjandi upplýsingar um öll bein fjárframlög til þeirra á umræddu tímabili, auk upplýsinga um önnur framlög sem metin eru að fjárhæð 200.000 kr. eða meira. Með yfirlýsingunni lýsa framangreind stjórnmálasamtök jafnframt vilja sínum til þess að Ríkisendurskoðun verði, með sérstakri lagaheimild, veitt heimild til að veita viðtöku og birta upplýsingar um framlög til einstakra frambjóðenda vegna forvala eða prófkjara innan stjórnmálasamtaka fyrir alþingis- og sveitarstjórnarkosningar á tímabilinu frá 1. janúar 2005 - 31. maí 2007, eða til þess tíma er lög nr. 162/2006, um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra, tóku gildi enda fari slík úrvinnsla og birting upplýsinga fram með fullu samþykki og þátttöku viðkomandi frambjóðanda. Loks lýsa aðilar vilja sínum til þess að Ríkisendurskoðun verði með lögum veitt sams konar heimild til að taka við og birta upplýsingar um framlög til einstakra frambjóðenda vegna kosninga til æðstu embætta innan stjórnmálasamtaka á árunum 2005 til 2009 að báðum árunum meðtöldum. Fái Ríkisendurskoðun slíka lagaheimild skora stjórnmálasamtökin á frambjóðendur sína að veita stofnuninni allar fyrirliggjandi upplýsingar um framlög til þeirra á umræddu tímabili.
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Erlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði Innlent Fleiri fréttir Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Sjá meira