Sölunni á HS orku er lokið 16. júlí 2009 03:45 Hitaveita Suðurnesja Reykjanesbær mun kaupa landsvæði við Svartsengi af HS orku á 940 milljónir króna.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur samþykkt að kaupa 32 prósenta hlut Geysis Green Energy (GGE) í HS veitum og þar með á Reykjanesbær 66,75 prósent í fyrirtækinu. Kaupverðið er 4,3 milljarðar króna. Auk þess var samþykkt að selja GGE 34 prósenta hlut Reykjanesbæjar í HS orku fyrir 13,1 milljarð króna. Hitaveitu Suðurnesja var skipt upp í tvö sjálfstæð fyrirtæki í vetur, HS veitur og HS orku. HS veitur annast dreifingu á rafmagni, hita og ferskvatni. HS orka annast orkuframleiðslu og raforkusölu. Guðbrandur Einarsson „Ég kaupi ekki þau rök að það sé gott fyrir okkur að eiga auðlindir sem aðrir nýta. Þannig er þetta gert í þriðja heims löndunum,“ segir Guðbrandur Einarsson, bæjarfulltrúi minnihlutans í Reykjanesbæ. „Málið var hreinlega ekki nægilega þroskað til að hægt væri að taka ákvörðun um málið,“ segir Guðbrandur. Hann segir skrítið að fulltrúar minnihlutans hafi ekki komið að undirbúningi málsins og að öll gögn hafi verið tilbúin þegar minnihluti bæjarstjórnar frétti fyrst af málinu þegar málið var tekið til afgreiðslu. Guðbrandur telur eðlilegt að það hefði verið farið í opið söluferli og ráðist í sjálfstætt verðmat á virði fyrirtækjanna tveggja. Guðbrandur lýsti einnig yfir áhyggjum af því að þegar núverandi samningur rennur út getur GGE endurnýjað samninginn einhliða til 65 ára. Því sé bærinn að afsala sér réttindum til næstu 130 ára. Árni Sigfússon „Ég er mjög ánægður með þennan samning sem ég tel mjög hagstæðan fyrir bæjarfélagið,“ segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Hann segir að málinu sé lokið frá þeirra hlið en það séu ákveðnir fyrirvarar í samningnum sem þurfi að uppfylla. Árni segir meðal annars að núverandi eigendur hafi forkaupsrétt á hlutnum sem seldur sé til GGE. Hann telur þó afar ólíklegt að einhverjir af þeim hafi áhuga eða bolmagn til að fjárfesta í fyrirtækinu. Einnig var samþykkt að Reykjanesbær keypti land og auðlindarétt sem áður var í eigu HS orku. Landið sem um ræðir er við Svartsengi og var kaupverðið 940 milljónir króna. Samningarnir voru samþykktir með 7 atkvæðum Sjálfstæðisflokks gegn 4 atkvæðum A-lista. bta@frettabladid.is
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent Fleiri fréttir Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Sjá meira