Formannsefni sagt stefnulaust 12. mars 2009 05:00 vill endurskoðun Bjarni Benediktsson segir gildar ástæður til að endurskoða Evrópumálin.fréttablaðið/gva
Þingmenn Framsóknarflokks og Samfylkingar sökuðu Sjálfstæðisflokkinn og formannsefni hans, Bjarna Benediktsson, um stefnuleysi í Evrópumálum á Alþingi í gær. Sjálfstæðismenn þvertóku fyrir það og sökuðu Samfylkinguna á móti um að hafa skipt um skoðun. Afstaða til ESB skipti engu þegar kæmi að stjórnarsamstarfi við Vinstri græna. Valgerður Sverrisdóttir var málshefjandi og spurði Bjarna beint út í afstöðu hans. Bjarni sagðist í engu hafa skipt um skoðun. Hins vegar hefði hann alltaf verið mikill efasemdamaður um að Íslendingar næðu góðum samningum við Evrópusambandið og hann teldi að heildarhagsmunum okkar væri betur borgið utan þess en innan. Hins vegar væru gildar ástæður til að taka Evrópumálin til endurskoðunar; slæm staða krónunnar og brotthvarf bandarísks hers gæfi tilefni til þess. Sigurður Kári Kristjánsson sagði stefnu Sjálfstæðisflokksins skýra; hann væri á móti aðild að ESB. Það gæti hins vegar breyst á landsfundi eftir lýðræðislega málsmeðferð. Mörður Árnason sagði afstöðu til ESB verða eitt af höfuðatriðum við næstu stjórnarmyndun, hvernig sem hún yrði. Pétur H. Blöndal sagði ESB hins vegar vilja keyra Íslendinga í fátækt með kröfu sinni í Icesave-málinu. Enginn þingmanna Vinstri grænna tók þátt í umræðunni. - kóp
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Erlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Fleiri fréttir Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Sjá meira