Glötuðu sjúkraskrám heilsugæslu á Dalvík 12. mars 2009 06:00 Dalvík. Tölvubúnaður var ekki rétt upp settur á Heilsugæslustöðinni á Dalvík og því glötuðust sjúkraskrár fyrir tíu mánaða tímabil.
Nú er ljóst að allar sjúkraskrár á Heilsugæslunni á Dalvík á tímabilinu júní 2003 til apríl 2004 eru glataðar vegna galla í tölvubúnaði.„Tapið var gífurlegt og olli mikilli aukavinnu lækna og læknaritara. Auk þess er ávallt hætta á því að gagnatap af þessu tagi stofni öryggi sjúklinga í hættu,“ segir í bréfi sem Heilsugæslan á Dalvík sendi Landlæknisembættinu og síðar Persónuvernd vegna málsins. Persónuvernd hafði fengið kvörtun frá sjúklingi sem taldi sig hafa orðið fyrir tjóni vegna þess að sjúkraskrár hans frá þessum tíma fundust ekki og því ekki hægt að færa fram fullnægjandi sönnun um tiltekin atvik sem tengdust sjúkrasögu hans. Samkvæmt skýringum Heilsugæslunnar á Dalvík var tölvukerfi stofnunarinnar uppfært árið 2003 með þjónustusamningi við fyrirtækið Anza og síðar Skrín ehf. Setja hafi átt upp netþjón með fjórum hörðum diskum sem ynnu í tveimur pörum þar sem allar upplýsingar yrðu skráðar í bæði pörin. Í mars 2006 hafi komi upp bilun í búnaðinum. Í ljós hafi komið að hann hafi ekki verið settur rétt upp og segulbandsspólur væru auðar. „Samkvæmt ráðleggingum frá Theriak (sem selur og þjónustar sjúkraskrárkerfið) voru hörðu diskarnir sendir til Bretlands í von um að nálgast mætti gögn af þeim. Þetta tókst ekki og þá voru þeir sendir áfram í nánari greiningu í Póllandi. Þar tókst ekki heldur að endurvekja gögnin. Á þessum tímapunkti var ljóst að tapast höfðu öll gögn úr sjúkraskrárkerfi heilsugæslustöðvarinnar frá því í júní 2003 og þar til í apríl 2004 og engin leið að endurvekja þau,“ segir í útskýringum heilsugæslunnar. Eftir þetta var netþjónninn settur upp eins og hann átti að vera og afritun breytt þannig að hún sé um símalínu til höfuðstöðva Skrín á Akureyri. Persónuvernd segir ljóst að Heilsugæslustöðinni hafi borið að taka öryggisafrit af sjúkraskrám og varðveita á öruggum stað. Það hafi ekki verið gert. „Þá telur Persónuvernd að heilsugæslustöðinni hafi einnig borið að athuga það reglulega hvort öryggisafrit hefðu að geyma nauðsynlegar upplýsingar. Telur Persónuvernd að slíkt verði að athuga nægilega oft til að tryggja að öryggisafrit, sem hefur að geyma slíkar upplýsingar, sé ávallt á vísum stað,“ segir stofnunin sem nú hyggst kanna hvort öryggisafritun sjúkraskránna sé orðin fullnægjandi. gar@frettabladid.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Fleiri fréttir Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Sjá meira