Rannsakendur verða að gæta orða sinna Jón Hákon Halldórsson skrifar 15. apríl 2009 16:04 Eiríkur Tómasson bendir á að þeir sem starfi við rannsókn opinberra mála megi ekki lýsa yfir sekt fólks afdráttarlaust. Mynd/ GVA. „
Ég er sammála því að þeir sem að eru að rannsaka mál eða koma að rannsókn máls verða að gæta orða sinna þegar þeir ræða um hugsanlega sök einhvers sem á hlut að máli," segir Eiríkur Tómasson lagaprófessor um grein Brynjars Níelssonar sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Þar segir Brynjar að Eva Joly sé vanhæf til að koma að rannsókn sérstaks saksóknara á efnahagshruninu.. Brynjar segir yfirlýsingar Evu Joly á opinberum vettvangi um að íslenskir fjármálamenn hafi skotið undan fé og að yfirgnæfandi líkur séu á því að stjórnendur bankanna hafi brotið lög veki furðu. Með yfirlýsingum af þessu tagi sé brotið gegn hlutlægnisreglu rannsakanda og ákæruvalds. Brynjar segir að það sé einsdæmi í réttarsögu Íslands að aðilar sem lýst hafi yfir sekt þeirra sem rannsaka skal komi að rannsókn sakamála. Eiríkur Tómasson segist ekki hafa fylgst nákvæmlega með því sem Joly hafi sagt. „En ef ég tók rétt eftir að þá nafngreindi hún enga menn þannig að ég held að hennar ummæli feli ekki í sér nein brot á meginreglum réttarfarsins. En það hefði verið brot ef hún hefði nafngreint einhverja menn og sagt að þeir hefðu brotið af sér," segir Eiríkur. Eiríkur bendir á að þeir sem komi að rannsókn mála verði að gæta orða sinna. Hver sá sem borinn sé sökum skuli vera saklaus þangað til að sekt hans er sönnuð fyrir dómi. „Af þeirri reglu hefur verið ályktað sem svo, og fyrir því eru dómar mannréttindastómstóls, að ef maður í opinberu starfi, sá sem kemur að rannsókn, lýsir því yfir áður en dómur fellur að maður hafi klárlega gerst sekur um refsivert brot að þá felur það í sér brot á mannréttindasáttmálanum og stjórnarskrárfyrirmælunum og þá myndi sá hinn sami vera vanhæfur," segir Eiríkur Tómasson og ítrekar að álit hans sé sett fram með þeim fyrirvara að hann hafi ekki kynnt sér mjög gaumgæfilega það sem Joly sagði.
Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira