Ræningjarnir voru í annarlegu ástandi 29. nóvember 2009 12:00
Mennirnir sem handteknir voru skammt frá verslun 10-11 í Engihjalla í gærkvöldi voru í annarlegu ástandi. Þeir hafa ekki verið yfirheyrðir en líklegt þykir að mennirnir hafi ætlað að nota féð úr ráninu til þess að fjármagna fíkniefnaneyslu. Það var um átta leytið í gærkvöldi sem lögregla fékk tilkynningu um ránið, en þar hafði aðili ógnað starfsfólki og viðskiptavini með hnífi. Komst hann á brott með fjármuni úr búðarkassa verslunarinnar. Félagi mannsins beið hans úti í bíl og keyrðu þeir á brott í snatri. Lögregla fann þá skömmu síðar skammt frá versluninni en þeir voru á stolnu ökutæki. Að sögn rannsóknarlögreglunnar í Kópavogi voru mennirnir undir áhrifum lyfja en þeir eru fæddir árið 1978 og 1985. Lögreglan vill minna á að lítið sé að hafa upp úr ránum sem þessu. Starfsfólk í verslunum fer reglulega með fé í öryggishólf og því er oftast sáralítið af peningum í búðarkössum. Starfsfólk verslunarinnar mun hafa haldið ró sinni meðan á ráninu stóð, en maðurinn sýndi nokkuð ógnandi tilburði þegar hann otaði hnífnum í versluninni. Mennirnir hafa ekki enn verið yfirheyrðir og því liggur ekki fyrir hvað þeim gekk til. Líklegt þykir þó að þeir hafi ætlað að nota féð úr ráninu til þess að fjármagna fíkniefnaneyslu.
Tengdar fréttir Rán í 10-11 í Kópavogi Rán var framið í 10-11 verslun í Engihjalla í kvöld. Lögreglan staðfesti þetta í samtali við Vísi en verst annars allra frétta af málum. Ekki er vitað hvort búið er að handtaka menn vegna málsins. 28. nóvember 2009 21:37 Ógnaði starfsfólki með eggvopni Lögreglan fékk tilkynningu um vopnað rán í verslun 10-11, Engihjalla, í Kópavogi um átta leytið í gærkvöldi. Þar hafði aðili ógnað starfsmönnum með eggvopni. Lögreglan handtók síðan tvo aðila í tengslum við málið á stolnu ökutæki skammt frá þeim vettvangi sem ránið átti sér stað. Enginn meiddist í ráninu að sögn lögreglu. Rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur nú tekið við rannsókn málsins 29. nóvember 2009 09:46 Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Innlent Fleiri fréttir „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Sjá meira
Rán í 10-11 í Kópavogi Rán var framið í 10-11 verslun í Engihjalla í kvöld. Lögreglan staðfesti þetta í samtali við Vísi en verst annars allra frétta af málum. Ekki er vitað hvort búið er að handtaka menn vegna málsins. 28. nóvember 2009 21:37
Ógnaði starfsfólki með eggvopni Lögreglan fékk tilkynningu um vopnað rán í verslun 10-11, Engihjalla, í Kópavogi um átta leytið í gærkvöldi. Þar hafði aðili ógnað starfsmönnum með eggvopni. Lögreglan handtók síðan tvo aðila í tengslum við málið á stolnu ökutæki skammt frá þeim vettvangi sem ránið átti sér stað. Enginn meiddist í ráninu að sögn lögreglu. Rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur nú tekið við rannsókn málsins 29. nóvember 2009 09:46