Ríkið fær einn á móti sex 8. desember 2009 06:00 Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson, fyrrverandi stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins, hefur verið tilnefndur í stjórnarformannssæti Íslandsbanka, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Á meðal annarra stjórnarmanna eru Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, og þrír erlendir bankasérfræðingar. Ekki er vitað um val á öðrum stjórnarmönnum. Í núverandi stjórn Íslandsbanka eru fimm sæti og verður þeim fjölgað um tvö þegar ný stjórn tekur við bankanum. Kröfuhafar, sem samþykktu í september að eignast 95 prósenta hlut í bankanum, fá sex stjórnarsæti en ríkið tilnefnir einn í krafti fimm prósenta hlutar. Ekkert er vitað um val ríkisins. Ekki náðist í Jón Sigurðsson þegar eftir því var leitað í gær. Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, vildi hvorki segja af né á um stjórnarskipanina en bætti við að hæfra stjórnarmanna væri leitað víða, jafnt hér sem erlendis. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um málið en eignarhaldsfélag sem fer með 95 prósenta hlut í bankanum mun ráða í stjórnina. Búið er að stofna eignarhaldsfélagið en beðið er staðfestingar Fjármálaeftirlitsins, að sögn Árna. Sama máli gegnir um yfirtöku kröfuhafa á bankanum. Hann gat ekki sagt til um hvenær það verði en taldi þess ekki langt að bíða.- jab
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Fleiri fréttir Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Sjá meira