Trúnaði létt af öllu sem óskað var eftir 8. desember 2009 06:00 Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar Alþingis. Mynd/GVA
Enginn þingmaður óskaði nokkurn tímann eftir því að trúnaði á tölvupóstsamskiptum Indriða H. Þorlákssonar og Marks Flanagan yrði aflétt. Þetta segir Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar Alþingis. Þingmenn gátu lesið tölvupóstana, ásamt ýmsum öðrum gögnum er varða Icesave-málið, í lokuðu herbergi í húsakynnum Alþingis gegn heiti um að halda trúnað. Gögnin hafa legið fyrir með þeim hætti frá því í júní. Almenningur hefur haft aðgang að lista yfir trúnaðargögn á vefsvæðinu island.is. Tölvupóstarnir komu fyrir sjónir almennings í fyrrakvöld á upplýsingasíðunni WikiLeaks. Þar má lesa bréf Indriða, þá ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu og fulltrúa í samninganefnd Íslands vegna Icesave, og Marks J. Flanagan, yfirmanns sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðs-ins á Íslandi. Í framhaldinu kröfðust nokkrir stjórnarandstöðuþingmenn þess, á þingfundi í gær, að trúnaði yrði létt af öllum gögnum. Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, kveðst ekki ætla að taka afstöðu til þeirrar kröfu. Í fjárlaganefnd hafi orðið sá sameiginlegi skilningur að almennt yrðu minnisblöð með einhliða frásögnum af fundum og sambærilegir tölvupóstar bundnir trúnaði. Hins vegar hafi hann gengist fyrir því að trúnaði yrði aflétt af öllum þeim plöggum sem óskað hafi verið eftir. „Við sóttum þá heimild fyrir því og fengum. Slíkum beiðnum var aldrei neitað," segir Guðbjartur. Spurður hvort samskipti Indriða og Flanagans hafi verið rædd í fjárlaganefnd segir Guðbjartur svo ekki hafa verið. „Enginn tók þau upp þó að þau hafi vitaskuld mátt ræða í nefndinni."- bþs
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira