Innlent

Ólafur Jóhannesson stefnir á toppsætið hjá VG

Ólafur Sveinn Jóhannesson
Ólafur Sveinn Jóhannesson

Ólafur Sveinn Jóhannesson, hefur ákveðið að bjóða sig fram í 1.-2. sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ólafi sem er fæddur árið 1979 á Tálknafirði í faðmi fjalla og fuglabjarga eins og hann orðar það.

„Norðvesturkjördæmi á sérstakan stað í hjarta mínu, en þar hef ég fengist við fjölbreytt störf, allt frá fiskvinnslu til ferðaþjónustu. Ber þar helst að nefna framkvæmdastjóri Fjord Fishing ehf. sem sérhæfir sig í sjóstangveiði og forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Tálknafjarðar. Árið 2002 lauk ég sveinsprófi í rafeindavirkjun frá Iðnskólanum í Reykjavík og nú í vor lýk ég sveinsprófi í rafvirkjun frá Tækniskólanum," segir í tilkynningunni.

Ólafur segist í gegnum árin hafa átt sæti í ýmsum nefndum og meðal annars sat hann í stjórnum Ferðamálasamtaka Vestfjarða og Framtíðarlandsins þar sem hann gegndi starfi framkvæmdarstjóra um hríð.

„Sem fósturforeldri og faðir standa málefni fjölskyldna mér nærri og ég vil stuðla að bættum hag heimilanna í landinu. Það er trú mín að íbúar kjördæmisins standi vel að vígi í þeirri miklu baráttu sem framundan er, en þar skipta auðlindir lands og sjávar miklu máli og verður það eitt helsta baráttumál mitt að styrkja undirstöður grunnatvinnuvega og um leið efla nýsköpun á þeim sviðum.

Það á að vera réttur hvers einstaklings að yrkja landið og sækja sjó á sjálfbæran hátt - þannig að ekki sé gengið á möguleika komandi kynslóða til sömu nýtingar á gæðum lands og sjávar."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×