Innlent

Hesthúsum við Elliðaár mótmælt

Úr myndasafni.
Úr myndasafni.
Stangveiðifélag Reykjavíkur segir óskiljanlegt að Borgarráð Reykjavíkur hafi gefið samþykki sitt fyrir á byggingu hesthúsa fyrir allt að 600 hross á bökkum Elliðaánna, nánar tiltekið við veiðistaðinn Heyvað.

Í tilkynnigu segir að ýmsir aðilar hafi gert athugasemdir við breytingu skipulags, meðal annars Veiðimálastofnun, Stangveiðifélag Reykjavíkursvo og Umhverfis- og Samgöngusvið Reykjavíkurborgar auk einstaklinga.

Stangveiðifélagið segir að svo virðist sem að athugasemdirnar eigi ekki hljómgrunn innan borgarkerfisins því deiliskipulagið hafi nú verið samþykkt.

,,Virðist sem að breytingarnar hafi verið unnar af fljótfærni þvi hugmyndir voru uppi um að ekkert afrennsli væri úr hesthúsahverfinu til að lágmarka mengun. Þurfti í framhaldinu að benda á þá staðreynd að aðrennsli til Elliðaánna er einmitt það sem gerir þær að ám og án þess væru Elliðaárnar líklegast varla til í núverandi mynd?" segir í tilkynningu.

Stangveiðifélagið segir að það komi ekki á óvart að borgarráð gangi fram með þessum hætti. ,,Áður hefur verið vegið verulega að ám og laxastofnum þeirra innan borgarmarkanna, og enn ætti mönnum að vera í fersku minni þegar ákveðið var að setja upp knattspyrnuleikfang á bökkum Úlfarsár, nánar tiltekið 16. metra frá árbakkanum."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×