Gunnar Páll: Neðsta sætið vonbrigði 11. mars 2009 14:56 Gunnar Páll Pálsson, tapaði í formannskjöri í VR. Bjóst við breiðari stuðningi. „
Maður verður að taka þessari niðurstöðu, þetta búinn að vera hörð barátta," segir Gunnar Páll Pálsson sem tapaði í kosningu um formann VR. Hann er starfandi formaður og er vonsvikinn yfir niðurstöðunni. Gunnar hefur hinsvegar verið mjög umdeildur eftir að í ljós kom að hann sat í stjórn Kaupþings þegar bankinn var þjóðnýttur. Niðurstaða kosningarinnar var skýr, Gunnar hlaut 28 prósent á meðan Kristinn Örn Jóhannesson, nýkjörinn formaður, hlaut rétt tæp 42 prósent. „Ég vissi ekki á hverju ég átti von," svarar Gunnar spurður hvort niðurstaðan hafi komið honum á óvart. Hann segist þó hafa búist við breiðari stuðning en raunin varð. Hann segir niðurstöðuna vonbrigði. Gunnar Páll varð gríðarlega umdeildur eftir að í ljós kom að hann sat í stjórn Kaupþings auk þess sem deilt var á yfirgengilegan launakostnað og bílkost. Lúðvík Lúðvíksson, netagerðamaður og frambjóðandi, mótmælti reglulega fyrir utan höfuðstöðvar VR þar sem hann krafðist þess að Gunnar Páll segði af sér formennsku. Lúðvík bauð sig síðan fram til formanns og hlaut fleiri atkvæði en Gunnar, eða 30 prósent. Aðspurður hvort Gunnar telji að þarna hafi verið að refsa honum fyrir nefndarstörf hjá Kaupþingi svarar Gunnar: „Það var orðrómur um að ég væri þjófur." Hann segir baráttuna hafa verið mjög harða og óvægna gagnvart persónu sinni. „Ég vil þakka þeim sem þó studdu mig," segir Gunnar Páll en áréttir að lokum að niðurstaðan sé mjög skýr. 6743 félagsmenn kusu í rafrænni kosningu og hlaut Kristinn 2.651 atkvæði, Lúðvík Lúðvíksson hlaut 1.904 atkvæði og Gunnar Páll Pálsson hlaut 1.774 atkvæði. Auðir og ógildir seðlar voru 409. Alls eru 25.095 félagsmenn á kjörskrá.
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Erlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Fleiri fréttir „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni Sjá meira