Skuldir kúabúa gríðarlega þungar 11. mars 2009 06:15 Úr Kjósinni, Mikil uppbygging hefur verið á mjólkurbúum á Íslandi og mjólkurkvóti keyptur til að ná fram stærri og hagkvæmari búum. Myndin tengist efni fréttarinnar ekkert.fréttablaðið/hari
Skuldir kúabænda á Íslandi nema rúmlega 30 milljörðum króna og líkur eru leiddar að því að þrjú af hverjum tíu kúabúum eigi undir högg að sækja vegna skuldsetningar. Kúabú hér á landi eru rúmlega 700 talsins. Samtök bænda kalla eftir því að fjármögnun kúabúa verði tryggð til lengri tíma, sérstaklega með það í huga að bú og heimili bænda eru yfirleitt óaðskiljanleg eining. Skuldastaða kúabænda hefur farið hraðversnandi á undanförnum árum. Skuldir þeirra voru um 20 milljarðar í ársbyrjun 2006 en eru rúmlega 30 milljarðar í dag. Bændur hafa verið hvattir til uppbyggingar og hafa fjárfest í atvinnutækjum og mjólkurkvóta. Hluti þessarar uppbyggingar hefur verið fjármagnaður með erlendum lánum. Athygli vekur að fjölmörg kúabú skulda lítið eða ekkert sem bendir til að erfitt eða ómögulegt sé fyrir fjölda kúabænda að bjarga sínum fyrirtækjum, nema til komi aðgerðir stjórnvalda eins og afskriftir skulda. Ljóst er að skuldir einstakra kúabúa eru 50 til 150 milljónir. Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, segir stöðu kúabænda hafa farið hratt versnandi á undanförnum árum. Skuldir kúabænda hafi verið um 20 milljarðar árið 2006 en hafi farið hratt vaxandi. Aðspurður hvort bændur hafi farið offari í lántökum segir Haraldur að svo geti verið í einhverjum tilfellum. „Höfum þó hugfast að allar forsendur fyrir uppbyggingunni hafa kollvarpast. Það er heldur ekkert leyndarmál að það var rekinn stífur áróður fyrir því að lítil áhætta væri fyrir bændur að taka erlend lán. Á gróðæristímanum voru bændur hvattir til lántöku af því að veð þeirra væru svo sterk, en það gleymdist að horfa á veltutölur búanna." Haraldur segir að til þess að setja í samhengi hversu rekstrarumhverfi bænda hefur versnað mikið þá voru útgjöld meðalstórs kúabús til áburðarkaupa árið 2007 um 960 þúsund krónur. Í vor stefnir í að reikningurinn verði 2,5 milljónir. Sveinn Sigurmundsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Suðurlands, segir að á Suðurlandi séu um 260 kúabú. Af þeim telji sambandið að rúmlega fimmtíu eigi í verulegum vanda og sami fjöldi nái rétt að halda sjó. „Þetta eru þeir sem hafa verið að endurbæta aðstöðu sína og kaupa mjólkurkvóta. Þetta eru frekar ungir bændur en eldri, eins og eðlilegt er, þó erfið skuldastaða einskorðist ekki við aldur. Þetta er í mörgum tilfellum ungt barnafólk, sem eykur á alvarleika málsins." Sveinn segir að á Suðurlandi sé meirihluti búanna vel sett sem undirstriki hvað staða skuldsettustu búanna sé gríðarlega erfið.svavar@frettabladid.is
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Erlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Fleiri fréttir „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Sjá meira