Innlent

Missti vald á bifreið og endaði á bílaplani N1

Frá vettvangi.
Frá vettvangi. MYND/Sigurður Ragnarsson
Ökumaður missti vald á bifreið sinni með þeim afleiðingum að bifreið hans hentist inn á bílaplan bensínstöðvar N1 við Lækjargötu í Hafnarfirði á fjórða tímanum í dag. Bifreiðinni var ekið suður eftir Reykjanesbraut.

Ökumaðurinn ók niður fjöldmörg umferðarskilti sem og auglýsingaskilti á vegum N1.

Betur fór en á horfðist og reyndist ökumaðurinn óslasaður. Bifreiðin var flutt ónýt af vettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×