Skattaskjólin eru ein mesta meinsemdin 11. mars 2009 04:45 Skýr skilaboð. Fullt var út úr dyrum þegar Joly talaði í Háskólanum í Reykjavík í gær. fréttablaðið/Anton
Efnahagsmál Það er „brandari“ að embætti sérstaks saksóknara sem falið hefur verið að rannsaka hvort eitthvað saknæmt hafi átt sér stað í bankahruninu á Íslandi hafi ekki fleiri en fjórum starfsmönnum á að skipa. Þetta sagði Eva Joly, fyrrverandi rannsóknardómari í Frakklandi, á málfundi í Háskólanum í Reykjavík í gær, þar sem hún flutti erindi um alþjóðlegt flæði fjármagns og þróunarlönd. Joly hefur áunnið sér alþjóðlega viðurkenningu fyrir baráttu sína gegn spillingu og fjármálaglæpum, en frá árinu 1994 gegndi hún embætti yfirrannsóknardómara, juge d‘instruction, í Frakklandi, en það er embætti sem nýtur sérstakrar verndar enda liggur í hlutarins eðli að sá sem því gegnir lendi uppi á kant við volduga aðila. Sem rannsóknardómari var Joly lykilmaður í að rekja eitt stærsta spillingarmál sem upp hefur komið í Frakklandi, þar sem olíufélagið Elf Aquitaine, sem þá var í ríkiseigu, var grunað um misferli. Málið leiddi til dóma yfir fjölda háttsettra embættis- og stjórnmálamanna. Joly rakti í erindi sínu svæsin dæmi um spillingu í kringum auðlindanýtingu í þróunarlöndum, þar sem voldug vestræn fyrirtæki eiga í hlut í flestum tilvikum og arðræna í félagi við spillta valaklíku heimamanna þau fátæku lönd sem í hlut eiga. En hún rakti einnig dæmi um spillingarrannsóknir á Vesturlöndum og erfiðleikana sem þeir sem vinna að slíkum rannsóknum lenda í samkvæmt hennar reynslu. Einn aðalvandinn sé sá að þeir aðilar sem stundi stærstu efnahagsbrotin séu fjölþjóðlegir en þær stofnanir sem hafa vald til að rannsaka slík mál og sækja menn til saka séu bundnar við einstök þjóðríki og þar með aðeins þann hluta viðkomandi efnahagsbrotastarfsemi sem undir lögsögu þess ríkis heyrir. Sérstök meinsemd í þessu samhengi segir Joly að séu skattaskjól á borð við bresku Jómfrúreyjar, sem gera mönnum með „einbeittan brotavilja“ kleift að skrá skúffufyrirtæki án þess að fram komi hver í raun standi að baki því. Frjálsræðisvæðing hins hnattvædda fjármálakerfis í anda nýfrjálshyggju hafi gert illt verra. Stór hluti verðbréfaviðskipta hafi farið fram með ógegnsæjum hætti í gegnum skúffufyrirtæki í skattaskjólum. Hún bendir á að rússneskir auðjöfrar, sem komust í aðstöðu til að auðgast gríðarlega við einkavæðinguna í kjölfar hruns Sovétríkjanna, hafi með hjálp skattaskjóla komið gríðarlegum fjárhæðum undan, sem með réttu ættu að koma rússneskum almenningi til góða. Joly sagði að það myndi „ekki koma sér á óvart“ ef í ljós kæmi að íslenskir auðjöfrar hefðu komið undan stórfé úr bönkunum föllnu. audunn@frettabladid.is
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira