Innlent

Þyrstir innbrotsþjófar í Borgartúni

Brotist var inn í vínbúðina við Borgartún í Reykjavík laust fyrir miðnætti og þaðan stolið fjórum kössum af léttvíni. Samkvæmt upptökum úr eftirlitsmyndavélum brutu tveir menn sér leið inn í búðina um bakdyrnar, en þriðji maðurinn beið í bíl fyrir utan. Þeir voru snöggir á staðnum og komust undan, en lögregla er nú að skoða upptökurnar nánar, í von um að bera kennsl á mennina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×