Nýr Suðurstrandarvegur opnaður að hluta 4. desember 2009 19:17 Þorlákshöfn. Leiðin á milli bæjarfélagsins og Grindavíkur mun styttast um 14 km með opnun hluta hins nýja Suðurstrandarvegar. Mynd/Rósa J.
Leiðin milli Grindavíkur og Þorlákshafnar hefur nú styst um fjórtán kílómetra með opnun hluta hins nýja Suðurstrandarvegar en gamla veginum um Selvogsheiði hefur jafnframt verið lokað. Lokaáfangi Suðurstrandarvegar er hins vegar í algerri óvissu eftir síðasta niðurskurð.Suðurstrandarvegur er orðinn frægur fyrir að vera kosningaloforðið sem alltaf er skorið niður. Tveir kaflar eru þó tilbúnir, kafli næst Grindavík var fyrstur, og nú hefur bæst við kafli næst Þorlákshöfn. Í vinnslu er kafli milli Krýsuvíkur og Selvogs en það er hins vegar búið að skera niður lokaáfangann, sem bjóða átti út í haust. Niðurskurðarsagan heldur því áfram en veginum var fyrst lofað í tengslum við kjördæmabreytingu fyrir áratug þegar Sunnlendingar og Suðurnesjamenn voru spyrtir saman í Suðurkjördæmi.Rennisléttur malbikaður kafli, sem opnaður var í vetrarbyrjun, meðfram ströndinni milli Þorlákshafnar og Selvogs, er sárabót, en samtímis var gamla veginum yfir Selvogsheiði lokað. Með þessu styttist leiðin um fjórtán kílómetra, auk þess sem Þorlákshöfn komst ef svo má segja loks í alfaraleið.Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstjóri Ölfuss, segir að ferðaþjónustuaðilar gleðjist nú mjög. Það sé þegar tekið að lifna yfir ferðaþjónustunni.Verktakinn, KNH á Ísafirði, lagði nýja veginn en á hann á eftir að klára kafla um Hlíðarvatn og Herdísarvíkurhraun. Verktakinn gerði hlé á verkinu í haust og flutti mannskapinn í Vopnafjarðarleið en áformar er að halda áfram eftir áramót og klára kaflann milli Selvogs og Krýsuvíkur næsta sumar. Þá verður aðeins eftir lokakaflinn, milli Krýsuvíkur og Ísólfsskála.Ólafur Áki segir að 18 kílómetrar standi þá eftir. Öll gögn séu tilbúin, hönnun og útboðsgögn, og kveðst ekki trúa öðru en það verði klárað. Annars verði þetta stærsti botnlangi á Íslandi.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira