Innlent

Lagt verði blátt bann við ósannindum

Siðareglna fyrir ráðherra og starfsfólk stjórnarráðsins er að vænta. fréttablaðið/stefán
Siðareglna fyrir ráðherra og starfsfólk stjórnarráðsins er að vænta. fréttablaðið/stefán
Banna á ráðherrum og embættismönnum að segja ósatt, hagræða sannleikanum og hygla vinum, ættingjum og kunningjum.

Þetta er meðal ábendinga sem bárust frá almenningi við tillögur að siðareglum fyrir ráðherra og starfsfólk stjórnarráðsins.

Fjórtán sendu inn athugasemdir en frestur til þess rann út í nóvember.

Samkvæmt upplýsingum úr forsætisráðuneytinu fögnuðu ýmsir því að siðareglur skyldu settar en einnig kom fram það sjónarmið að reglusetningin væri sýndarmennska og tímasóun. Ábendingar komu fram um að drög að reglunum væru í sumum tilfellum of almenn og var í þeim efnum til dæmis bent á orðanotkunina „persónuleg tengsl“ og „hagsmunaárekstrar.“

Ein tillagan var á þá leið að fært yrði í siðareglurnar að ráðherrar mættu ekki halda dýrar veislur fyrir ríkisfé nema bjóða öllum almenningi til veislunnar. Önnur kvað á um að skera bæri niður öll fríðindi ráðamanna og taka ætti fyrir að ráðherrar og starfsfólk stjórnarráðsins þæðu styrki sem ætlaðir væru námsmönnum, lista- eða fræðimönnum. Þá var gerð athugasemd við að kaup á kynlífsþjónustu væru sögð brot á siðareglum því slík kaup væru væntanlega lögbrot. Loks var kallað eftir því að skýr viðurlög væru við brotum á siðareglunum.

Í starfshópi um siðareglur fyrir ráðherra og stjórnarráðsstarfsfólk sitja Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, Halldóra Friðjónsdóttir, starfsmaður fjármálaráðuneytisins, og Jón Ólafsson, prófessor við Háskólann á Bifröst.

Samkvæmt upplýsingum úr forsætisráðuneytinu áformar forsætis­ráðherra að leggja fram á þingi á næstunni frumvarp til laga þar sem siðareglunum verður veitt lagastoð og kveðið á um eftirfylgni með þeim. - bþs



Fleiri fréttir

Sjá meira


×