Földu 4 kíló af gervifíkniefnum í rjóðri 4. desember 2009 06:00 Pakki sem fimmmenningarnir töldu hafa að geyma tæp fjögur kíló af amfetamíni var sóttur í vöruhús Samskipa.
Ríkissaksóknari hefur ákært fimm menn á tvítugs- og þrítugsaldri fyrir að hafa reynt að smygla til landsins nær fjórum kílóum af amfetamíni. Hinir ákærðu eru Jóhann Páll Jóhannesson, Jón Sveinbjörn Jónsson, Logi Már Hermannsson, Þorgrímur Kolbeinsson og Þorsteinn Birgisson. Fíkniefnin voru falin í málningarfötum og þeim komið fyrir í pakka sem var póstlagður í Danmörku 6. ágúst. Pakkinn var haldlagður af lögreglunni í Danmörku 11. sama mánaðar, fíkniefnin fjarlægð og gerviefnum komið fyrir í staðinn. Pakkinn var sendur til Íslands í kjölfarið. Fimmmenningarnir stóðu allir í þeirri trú að að pakkinn innihéldi fíkniefni. Logi er ákærður fyrir að hafa skipulagt og fjármagnað innflutning fíkniefnanna og að hafa skipt verkum með hinum þremur. Hann fékk Þorgrím til að fara til Danmerkur, sækja fíkniefnin hjá óþekktum manni, pakka þeim og senda til Íslands gegn 300 þúsunda króna greiðslu fyrir verkið. Þá fékk Logi þá Jóhann Pál og Þorstein til að taka á móti fíkniefnunum, opna pakkann og geyma þau þar til þau yrðu sótt. Þorgrímur skipulagði innflutning fíkniefnanna ásamt Loga. Hann fékk Jón Sveinbjörn til þess að sækja pakkann í vöruhús Samskipa að Kjalarvogi 7 til 15 í Reykjavík. Jón Sveinbjörn fékk pakkann tollafgreiddan og flutti í rjóður við Skarhólabraut í Mosfellsbæ, skildi hann eftir þar, en kom svo aftur 9. sama mánaðar ásamt Jóhanni Páli og Þorsteini og vísaði þeim á pakkann. Þorsteinn sótti hann að Skarhólabraut ásamt Jóhanni Páli og Jóni Sveinbirni og flutti hann í Rauðumýri í Mosfellsbæ ásamt Jóhanni Páli. Frá Rauðumýri flutti Jóhann Páll svo pakkann heim til sín að Flatahrauni 29 í Hafnarfirði þar sem hann hugðist geyma fíkniefnin uns Logi tæki við þeim á ný. Jóhann Páll var handtekinn af lögreglu þegar hann var að fjarlægja efnin úr pakkanum. Jón Sveinbjörn er jafnframt ákærður fyrir vörslur amfetamíns sem lögreglumenn fundu við húsleit. Loks er Þorgrímur ákærður fyrir að hafa haft í ófullnægjandi geymslu haglabyssu af gerðinni Benelli og riffil af gerðinni Norinco 22 cal LR. Vopnin voru bæði hlaðin og fundust á bak við kommóðu við húsleit lögreglu. jss@frettabladid.is
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Sjá meira