Kristinn með japanska ríkissjónvarpinu 28. apríl 2009 04:30 Kristinn Hrafnsson var einn af íslensku blaðamönnunum sem aðstoðuðu erlend tökulið og blaðamenn á kosninganótt. Fréttablaðið/Vilhelm „
Þetta gekk alveg ljómandi vel og var bara býsna ánægjulegt,“ segir fréttahaukurinn Kristinn Hrafnsson. Hann var japanska ríkissjónvarpinu innan handar á nýliðinni kosninganótt en fjöldi erlendra blaða- og fréttamanna voru staddir hér á landi til að fylgjast með þessum sögulegu kosningum. Kristinn taldi að rúmlega tíu Íslendingar hefðu verið í svipuðu hlutverki og hann: að aðstoða erlenda blaðamenn og tökulið. Japanar hafa verið gríðarlega áhugasamir um íslensku efnahagskreppuna og fylgst grannt með gangi mála. Japanarnir voru á Grand hóteli og sáu sigurræðu Jóhönnu Sigurðardóttur og sendu meðal annars út beint snemma á sunnudagsmorgninum. „Þetta var í kringum fimmtán mínútna innslag og var sýnt í einum vinsælasta sjónvarpsþættinum,“ útskýrir Kristinn en sökum tímamismunar var um að ræða kvöldþátt í Japan. Japanska tökuliðið var búið að fylgjast með aðdraganda kosninganna í viku en hélt sig mestmegnis við höfuðborgarsvæðið. Kristinn segir að samstarfið hafi gengið stóráfallalaust, þrátt fyrir gjörólíka menningarheima og siði. „Þeir þurftu að læra töluvert af íslenskri útsjónarsemi,“ útskýrir Kristinn og þvertekur fyrir að íslenska leiðin sé slæm, en bætir því við að það hafi komið Japönum dálítið spánskt fyrir sjónir að fá ekki heildarkjörsókn á kosninganótt. „Já, þetta fór dálítið fyrir brjóstið á þeim.“ - fgg
Mest lesið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Einvígi aldarinnar endurtekið Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Milljónir í að efla tónleikastaði í miðbænum Tónlist Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Lífið Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Fleiri fréttir Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Sjá meira