Flosa sárt saknað Jón Hákon Halldórsson skrifar 25. október 2009 14:32 „
Hans er sárt saknað," segir Jakob Frímann Magnússon tónlistarmaður um Flosa Ólafsson. Flosi lést á Landspítalanum í gær, 79 ára að aldri, eftir bílslys í vikunni sem leið. Flosi lék eftirminnilegt hlutverk í kvikmynd Stuðmanna, Með allt á hreinu, en Jakob Frímann segist hafa kynnst honum löngu áður en það samstarf hófst. „Ég kynntist honum í raun og veru löngu áður en ég hitti hann, vegna þess að hann var skólafélagi móður minnar í Menntaskólanum á Akureyri og hún sagði gjarnan af honum sögur og fór með kveðskap eftir hann frá því að ég var barn," segir Jakob Frímann. Hann segir að þeir hafi síðan gerst nágrannar á Tjarnargötunni og þá hafi hin formlegu kynni hafist sem leiddu til samstarfs sem var bæði á hljómplötum, sjónvarpsþáttum og í kvikmyndum. „Að ógleymdri hestamennskunni. Við riðum alloft út saman og fórum saman í ferðir um fjöll og firnindi," segir Jakob Frímann. Hann segir að Flosi hafi verið mikill og góður knapi. „Það stendur eftir minning um einstakan öðlingsmann sem er í alla staði óviðjafnanlega skemmtilegur og mikill öðlingur. Hann skóp sér margþáttaðan vettvang bæði með túlkun og skrifum og söng og leiftrandi greind," segir Jakob Frímann sem sendir eiginkonu Flosa og fjölskyldunni allri innilegustu samúðarkveðjur.
Tengdar fréttir Flosi Ólafsson látinn Flosi Ólafsson leikari lést á sjúkrahúsi í gær. Flosi hefur dvalið á sjúkrahúsi undanfarna daga en hann slasaðist í alvarlegu bílslysi í vikunni. 25. október 2009 12:23 Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Brotist inn í garnverslun í Árbæ Innlent Bogi Ísak Nilsson er látinn Innlent Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Erlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Fleiri fréttir Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Sjá meira
Flosi Ólafsson látinn Flosi Ólafsson leikari lést á sjúkrahúsi í gær. Flosi hefur dvalið á sjúkrahúsi undanfarna daga en hann slasaðist í alvarlegu bílslysi í vikunni. 25. október 2009 12:23