Mun lækka launin og selja glæsibifreið 9. mars 2009 10:51 Lúðvík Lúðvíksson
Lúðvík Lúðvíksson frambjóðandi til formanns VR segir að sitt fyrsta verk nái hann kjöri á miðvikudaginn verði að lækka laun formannsins ásamt því að selja glæsibifreið sem formaðurinn ekur um á. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lúðvíki. Hann segist munu notast við eigin bíl í sínum störfum fyrir VR og segist reyndar hafa stungið upp á því á framboðsfundi um daginn að réttara væri að núverandi formaður fengi strætókort í stað bifreiðar sem sé í boði félagsmanna VR. Hann segir núverandi formann aðallega hafa verið í ferðum á milli skrifstofu VR og Kaupþings banka í stað þess að vera í störfum fyrir hinn almenna félagsmann VR. „Glæsibifreiðin fer beint í sölu ef ég næ kjöri, það er á hreinu. Ég mun fara ofan í bækur VR með hæfustu aðilum og leggja fjárfestingastefnu VR fram til okkar félagsmanna. Við í VR eins og aðrir þurfum að læra af mistökum stjórnenda sem fóru mikinn með okkar eigur í VR," segir Lúðvík. Hann segir einnig að vonandi fyrir formanninn mun ekkert athugavert koma fram í bókum félagsins, en glæsibifreiðin verði seld og launin lækkuð við fyrsta tækifæri. „Nái núverandi formaður kosningu vil ég spyrja hvort hann ætli að sitja á glæsibifreiðinni og hvort hann ætli að halda sínum 10 földu launum á við hina lægstlaunuðustu í VR."
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Erlent Fleiri fréttir Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Sjá meira