Fordæma samning OR um sölu á hlutnum í HS Orku 5. september 2009 17:20 Hluti af Borgarahreyfingunni á fundi.
Borgarahreyfingin lýsir furðu sinni og andstyggð á því að sveitarfélög geti tekið sér það gerræðisvald að koma auðlindum þjóðarinnar í hendur einkaaðila án nokkurar lýðræðislegrar umræðu eða þverpólítisks vilja í samfélaginu. Borgarahreyfingin fordæmir það harkalega, að þjóðin sé svipt nýtingarrétt sínum á eigin auðlind í 65 ár í allt að 130 ár sem er fordæmislaus árafjöldi sé miðað við vestræn lýðræðisríki á borð við Bandaríkin sem miðar við 10 ár, í skjóli skammtímahagsmuna og einbeitts vilja fulltrúa sveitarfélaganna til að nýta sér tækifæri kreppunar til einkavæðingar án umræðu og umboðs. Þetta kemur fram í ályktun frá félagsfundi Borgarahreyfingarinnar sem haldinn var í fyrradag. Í ályktuninni segir ennfremur að Borgarahreyfingin fordæmi þann samning sem nú liggur fyrir að eigi að samþykkja hjá Reykjavíkurborg um að koma hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku í hendur einkaaðila með lítilli umræðu og í raun án nokkurs umboðs eða þverpólitísks vilja hins almenna borgara ein og það er orðað. Þá segir að þegar litið sé yfir samninginn og skarpir menn hafa reiknað út frá uppgefnum forsendum, megi glögglega sjá að Reykvíkingar muni tapa hið minnsta um fimm milljörðum sem samsvari rekstri leikskólakerfisins í hálft ár eða í versta falli 9,4 milljörðum króna. „Einstaka furðu vekur það svo og er í raun algjörlega óásættanlegt að OR skuli svo veita kúlulán á lægri vöxtum en vel greiðslufær stórveldi fá á sama tíma og OR er að greiða Hafnarfirði verðtryggt lán til baka á 4,5% vöxtum fyrir hlut Hafnarfjarðar í HS Orku. Auk þess sem furðulegt má telja að 100 milljónum sé fleygt í ráðgjafafyrirtæki fyrrum starfsmanna Landsbankans fyrir þessa algjörlega óásættanlega sölu á sama tíma og verið sé að skera niður annars staðar í samfélaginu," segir í ályktuninni. Fundurinn ályktar því svo að borgarstjórn beri að hafna samningnum sem ekki sé gerður í þágu hins almenna borgara og minnir borgarstjórn á að hún eigi að vera að vinna í þágu almennings en ekki gegn hagsmunum borgarbúa líkt og í þessu máli. Þá sé svo óafsakanlegt að Orkuveita Reykjavíkur sé að taka veð eingöngu í hlutabréfum HS Orku en ekki í neinum raunverulegum eignum og sé það fordæmt með öllu að slík 2007 bókhaldsveð séu notuð miðað við afleiðingar annarra slíkra fyrir íslenskt samfélag. „Félagsfundur Borgarahreyfingarinnar ályktar einnig að grípa beri harkalega í taumana og þessi dulbúna tilraun til einkavæðingar á auðlindum þjóðarinna með yfirskini nýtingarréttar, verði tafarlaust stövðuð með öllum tiltækum ráðum svo sem inngripi skilanefnda og þjóðnýtingar fyrirtækjanna sem um ræðir ef þörf krefur. Að lokum vill Borgarahreyfingin hvetja alla þá sem ekki stendur á sama, óháð skoðunum, til að senda borgarfulltrúum bréf og tölvupósta eða hringja til að lýsa vanþóknun sinni yfir. Einnig hvetur hún alla þá sem vettlingi valda til að fjölmenna á borgarráðsfund næstkomandi fimmtudag til að sýna óánægju sína í verki."
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent Fleiri fréttir „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Sjá meira