Sáttmáli í uppnámi 5. september 2009 07:15
Aðilar vinnumarkaðarins gagnrýna stjórnvöld fyrir aðgerðaleysi og spyrja hvort ríkisstjórnin hafi gleymt stöðugleikasáttmála um endurreisn efnahagslífsins sem var undirritaður í júní. Starfsgreinasambandið áréttar að sáttmálinn hafi ekki „verið undirritaður upp á grín". Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir ljóst að síðan gengið var frá stöðugleikasáttmálanum hafi Alþingi verið upptekið af aðeins einu máli - Icesave. Því hafi ekki verið unnið sem skyldi að þeim fjölmörgu verkefnum sem sett voru fram í sáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisins í lok júní. „Þetta er mjög alvarlegt mál og grátlegt að Alþingi hafi varið sextán vikum í þetta mál og ekkert tekið á skuldavanda heimilanna á meðan." Gylfi segir veikingu krónunnar, og minnkandi líkur á að Seðlabankinn lækki vexti þess vegna, sérstakt áhyggjuefni. „Einnig var samið um að lífeyrissjóðirnir myndu fjármagna verkefni utan ríkisreiknings. Það átti að vera að frumkvæði fjármála-, samgöngu- og heilbrigðisráðuneytisins að útfæra þau verkefni en það hefur ekki verið gert." Gylfi segir að nýlega hafi verið haldinn samráðsfundur með ríkinu og aðilar vinnumarkaðarins hafi allir beint gagnrýni að ríkisstjórninni fyrir hversu hægt gengur að framkvæma það sem stöðugleikasáttin fjallaði um. „Það er alveg ljóst að það eru fyrirvarar á þessu samstarfi öllu. Ef ríkisstjórnin stendur ekki við sitt er ekkert víst að þetta haldi áfram." Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, tekur undir gagnrýnina og segir ekkert bera á „viðspyrnunni" sem mönnum hafi verið tamt að tala um. Hann segir að það verði að greiða úr vanda fyrirtækjanna í landinu sem öll bíði aðgerða og nú þegar verði að fara í framkvæmdir, til dæmis þær sem lífeyrissjóðirnir eru tilbúnir að fjárfesta í. Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins ályktaði á þriðjudag um stöðugleikasáttina. Framkvæmdastjórnin leggur á það áherslu að koma þurfi verkefnum af stað. Það dugar ekki að ríkisstjórnin dragi lappirnar og að einstaka ráðherrar horfi til búskaparhátta frá miðri síðustu öld og þvælist fyrir mikilvægum nútímaframkvæmdum sem þegar eru á borðinu. Ekki náðist í Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í gær. - shá
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Fleiri fréttir Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Sjá meira