Tjá sig ekki frekar um deilurnar við Landsbankann 5. september 2009 14:30 Guðrún Pétursdóttir formaður styrktarsjóðs hjartveikra barna.
Styrktarsjóður hjartveikra barna harmar þá umræðu sem átt hefur sér stað undanfarna daga í tengslum við þá fjármuni sem sjóðurinn tapaði vegna eignastýringar Landsbankans. Í ljósi umfjöllunnar síðustu daga og ekki síst í ljósi staðhæfinga Páls Benediktssonar upplýsingafulltrúa skilanefndar bankans hefur sjóðurinn sent frá yfirlýsingu. Þar segir að í maí 2008 hafi eingöngu verið samþykkt smávægileg breyting á fjárfestingarstefnu sjóðsins þar sem Landsbankanum var veitt heimild til að kaupa erlend skuldabréf að ákveðnu marki. Eftir sem áður var umsamin fjárfestingarstefna þannig að 90% af fjármunum sjóðsins skyldi varið til kaupa á innlendum skuldabréfum, annað hvort ríkisskuldabréfum eða öðrum bréfum með áþekkri áhættutöku og í ríkisskuldabréfum. „Það er því rangt að stjórn sjóðsins hafi verið að heimila Landsbankanum að taka áhættu umfram það sem almennt felst í kaupum á ríkisskuldabréfum. Hafi upplýsingafulltrúi skilanefndar Landsbankans verið að vísa í aðra og breytta fjárfestingarstefnu er forsvarsmönnum Styrktarsjóðsins ókunnugt um hana og hefur hún ekki verið afhent sjóðnum þrátt fyrir áskoranir þar um," segir í yfirlýsingunni. Líkt og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur sjóðurinn höfðað mál á hendur bankanum og krefst skaðabóta að fjárhæð 21 milljón króna vegna þeirra fjármuna sem töpuðust. Þá segir í yfirlýsingunni að hvorki forsvarsmenn sjóðsins né lögmaður hans hyggist tjá sig frekar um málið opinberlega fyrr en dómru í því hefur verið kveðinn upp.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Fleiri fréttir Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Sjá meira