Útgáfustjóri las yfir póst blaðamanns 7. október 2009 05:15 Óskar Magnússon
Óskar Magnússon, útgáfustjóri Morgunblaðsins, skoðaði tölvupóst blaðamanns sem hætti á blaðinu undir lok september. Blaðamannafélag Íslands hefur verið upplýst um málið. Það verður kært til Persónuverndar. Málið virðist eiga upphaf að rekja til þess að Ragnhildur Sverrisdóttir, umsjónarmaður sunnudagsútgáfu Morgunblaðsins, hætti í liðinni viku og sendi þá samstarfsmönnum kveðju í fjöldapósti. Sama dag birtist kveðjubréf Ragnhildar á dv.is. Blaðamaðurinn sem um ræðir hefur ekki stigið fram undir nafni. Samkvæmt heimildum hafði Óskar Magnússon samband við blaðamanninn daginn eftir að Ragnhildur sendi bréf sitt. Mun blaðamanninum segjast svo frá að Óskar hafi sagst hafa lesið tölvupóst hans í því skyni að komast að því hver hefði sent kveðjubréf Ragnhildar úr húsi. Hafi þá Óskar jafnframt sagst hafa lesið fyrri bréf blaðamannsins og uppgötvað að hann hafi boðið DV afrit af könnun um lestur á einstaka hlutum Morgunblaðsins. Mun blaðamaðurinn hafa játað að hafa sent DV slíkt boð enda þótt hann hafi aldrei sent könnunina. Frásögn Óskars af atburðarásinni er önnur. Ekki náðist tal af honum í gær en í samtali við mbl.is kveðst Óskar ekki hafa ætlað að afhjúpa hver hefði áframsent kveðjubréf Ragnhildar. Tilgangurinn með skoðun á tölvupóstinum hafi verið að athuga trúnaðarbrot starfsmannsins sem hafi boðið DV áðurnefnda könnun til birtingar. Póstur annarra starfsmanna væri ekki til skoðunar. Hann fagnaði því að Persónuvernd tæki málið til skoðunar. Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri Persónuverndar, bendir á að samkvæmt reglum Persónuverndar sé óheimilt að skoða einkatölvupóst nema brýna nauðsyn beri til svo sem vegna tölvuveiru eða sambærilegs tæknilegs atviks. „Þegar tölvupósts- eða netnotkun er skoðuð skal þess gætt að gera starfsmanni eða nemanda fyrst grein fyrir því og veita honum færi á að vera viðstaddur slíka skoðun," segir í reglunum. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, segir stjórn félagsins ekki hafa rætt tölvupóstsmálið formlega. „En því er ekki að neita að ef fulltrúar eigenda lesa tölvupóst starfsmanna þá hlýtur það að setja samband heimildarmanna og blaðamanna í mikið uppnám," segir Þóra Kristín og bætir við að heimildarmenn verði að geta treyst því að trúnaður ríki milli þeirra og blaðamanna. „Það verður því að kryfja þetta mál til mergjar og ég fagna því að viðkomandi blaðamaður ætli að kvarta til Persónuverndar og fá skorið úr um réttarstöðu sína." Blaðamenn Morgunblaðsins munu nú bíða átekta eftir frekari skýringum yfirmanna sinna. gar@frettabladid.is
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira