Innlent

Gulldeplan á förum

Gulldeplan, sem ýmist er kölluð kreppukóð eða bjargvætturinn, er nú um það bil að yfirgefa íslenska lögsögu djúpt suður af landinu. Tíu skip voru þar að veiðum í gær en eru um það bil að slá botninn í veiðarnar og halda heim. Hátt í 14 þúsund tonn hafa veiðst af gulldeplu í vetur, en þetta er í fyrsta skipti sem hún er veidd hér við land. Útflutningsverðmæti afurðanna er komið vel á annan milljarð króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×